Nýtt tölublað Eyjafrétta er komið út og spannar efnið vítt svið samfélagsins í Vestmannaeyjum, allt frá atvinnulífi og stjórnmálum til mannlífs og menningar.
Forsíðuefni blaðsins er um lok loðnuvertíðar, sem gekk vel hjá bæði Ísfélaginu og Vinnslustöðinni. Fyrirtækin náðu að veiða allan úthlutaðan kvóta og framleiðsla var í samræmi við áætlanir.
Töluverð umfjöllun er um sveitarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum sem framundan eru. Greint er frá framboðslistum og stöðu flokka. Þar á meðal er fjallað um Eyjalistann, sem hefur kynnt sinn lista, og Miðflokkinn sem kynnir framboð sitt. Einnig er sagt frá prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þar sem Eyþór Harðarson hlaut flest atkvæði og mun leiða listann í komandi kosningum.
Í blaðinu er viðtal við Arndísi Maríu Kjartansdóttur, oddvita Eyjalistans, þar sem hún ræðir meðal annars áherslur í samgöngum, uppbyggingu og menntamálum.
Mannlífsumfjöllun er fyrirferðarmikil í blaðinu. Þar má meðal annars finna viðtal við rekstraraðila verslunar sem fagnaði 30 ára afmæli, auk umfjöllunar um konu sem festi kaup á gömlu húsi og leggur áherslu á að varðveita upprunalegan stíl þess. Þá er fasteignaumfjöllunin á sínum stað.
Einnig er fjallað um nýtt samfélagsverkefni þar sem stefnt er að opnun innileikvallar fyrir börn, sem ætlað er að bæta afþreyingu í bænum, sérstaklega yfir vetrartímann. Þá er rætt við bræður fráÚkraínu sem hafa sest að í Eyjum. Í dag starfa þeir báðir hjá Skipalyftunni og hafa komið sér vel fyrir í Eyjum, þó hugurinn leiti reglulega til heimalandsins þar sem foreldrar þeirra búa.
Í menningarhluta blaðsins er sagt frá tónlistarverkefni þar sem Eyjakona vinnur að útgáfu á tvöfaldri vínylplötu með eigin lögum eftir margra ára undirbúning. Íþróttirnar fá einnig sitt pláss í blaðinu að venju. Þar er m.a. rætt við þjálfara beggja meistaraflokka ÍBV í knattspyrnu, auk þess sem rætt er við Margréti Láru Viðarsdóttur.
Að lokum er ítarleg umfjöllun um hjónin Hjalta Kristjánsson og Veru Björk Einarsdóttur, sem valin voru Eyjafólk ársins 2025 fyrir framlag sitt til heilbrigðisþjónustu og samfélagsins í Vestmannaeyjum.
Hægt er að gerast áskrifandi að Eyjafréttum hér á vefnum, en blaðið fæst einnig í lausasölu í Tvistinum og á Kletti. Áskrifendur geta nálgast vefútgáfuna hér. Ef þú vilt gerast áskrifandi þá er þetta síðan sem þú getur með auðveldum hætti náð þér í blaðið.