�?að var fullt út úr dyrum á Taxfree kvöldi Húsasmiðjunnar í síðustu viku enda dagskráin skemmtileg. Ásamt öllum þeim flottu tilboðum sem Húsasmiðjan bauð uppá þá var dagskrá kvöldsins fjölbreytt. Tískusýning á vegum Sölku og Skvísubúðarinnar sem var glæsileg. Hárhúsið kynnti sínar vörur, Kári Höskuldsson var með handverk sitt til sýnis og Heimaey kertaverksmiðjan með kertin sín til sölu. Húsasmiðjan hefur þar með hringt inn jólin í sinni verslun með þessu kvöldi sem nú má segja að árlegt sé.