Fjórfaldir meistarar nálgast botninn eftir tap gegn KA í kvöld

KA-menn mættu galvaskir til Eyja í kvöld og mættu þar ÍBV í leik í Olís-deild karla.

Gestirnir tóku strax forystuna í leiknum og gáfu hana aldrei eftir, staðan í hálfleik var 11-17 KA í vil. Eyjamenn náðu sér aldrei almennilega á strik í leiknum hvorki í vörn né sókn fyrir utan um tíu mínútna kafla í síðari hálfleik. Sá kafli dugði til að koma muninum niður í eitt mark með 40 sekúndur eftir. Daði Jónsson leikmaður KA, náði þó að setja eitt mark að lokum með ótrúlegri vippu yfir hin hávaxna Kolbein í marki ÍBV. Lokatölur ÍBV 30 – KA 32. Allt í allt verðskuldaður sigur KA-manna.

Markahæstur í liði ÍBV var Theódór Sigurbjörnsson með 7 mörk. Aðrir markaskorararar voru Kristján Örn Kristjánsson – 6, Sigurbergur Sveinsson – 5, Kári Kristján Kristjánsson – 3, Dagur Arnarsson – 3, Fannar Þór Friðgeirsson – 2, Elliði Snær Viðarsson – 1, Daníel Örn Griffin – 1, Hákon Daði Styrmisson – 1 og Grétar Þór Eyþórsson – 1.

Í markinu varði Kolbeinn Aron Ingibjargarson 8 skot og Björn Viðar Björnsson 4.

Eftir níu umferðir standa því fjórfaldir meistarar ÍBV í níunda til tíunda sæti ásamt Gróttu með sex stig, aðeins einu stigi frá falli.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.