Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, til uppstillingar á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, rann út kl. 18 í gær. 14 einstaklingar buðu sig fram og verða því í kjöri í prófkjörinu sem fram fer föstudaginn 13. mars nk.
Eftirtaldir einstaklingar gáfu kost á sér:
| Aníta Jóhannsdóttir |
| Ármann Halldór Jensson |
| Eyþór Harðarson |
| Guðbjörg Sól Sindradóttir |
| Hannes Kristinn Sigurðsson |
| Hildur Sólveig Sigurðardóttir |
| Jarl Sigurgeirsson |
| Kjartan Vídó Ólafsson |
| Margrét Rós Ingólfsdóttir |
| Óskar Jósúason |
| Ragnheiður Lind Geirsdóttir |
| Rannveig Ísfjörð |
| Trausti Hjaltason |
| Þóra Guðný Arnarsdóttir |
Kjörnefnd vinnur nú að undirbúningi framkvæmdar prófkjörsins og mun utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefjast nk. þriðjudag, 3. mars. Þátttakendur í prófkjörinu munu velja í sæti 1 til 8, hvorki fleiri né færri, og bindandi niðurstaða verður í samræmi við prófkjörsreglur Sjálfstæðisflokksins.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla, vegna prófkjörsins, fer fram í Ásgarði, félagsheimili Sjálfstæðisflokksins í Eyjum og í Valhöll í Reykjavík. Allir flokksbundnir sjálfstæðismenn, sem og þeir sem skrá sig í flokkinn á kjörstað, hafa rétt til þátttöku í prófkjörinu.
Kjörnefnd fagnar miklum áhuga á þátttöku í prófkjörinu og þeim fjölbreytta og góða hópi fólks sem gefur kost á sér til kjörs. Þessi hópur spannar breitt aldursbil og jafn fjöldi karla og kvenna er í framboði.
Kjörnefnd vonast til að sjálfstæðismenn fjölmenni á kjörstað og taki þannig þátt í að raða upp sterkum og sigurstranglegum framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, segir í tilkynningu frá kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Eyjum.