Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
default
Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson.

Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, til uppstillingar á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, rann út kl. 18 í gær. 14 einstaklingar buðu sig fram og verða því í kjöri í prófkjörinu sem fram fer föstudaginn 13. mars nk.

Eftirtaldir einstaklingar gáfu kost á sér:

Aníta Jóhannsdóttir
Ármann Halldór Jensson
Eyþór Harðarson
Guðbjörg Sól Sindradóttir
Hannes Kristinn Sigurðsson
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Jarl Sigurgeirsson
Kjartan Vídó Ólafsson
Margrét Rós Ingólfsdóttir
Óskar Jósúason
Ragnheiður Lind Geirsdóttir
Rannveig Ísfjörð
Trausti Hjaltason
Þóra Guðný Arnarsdóttir

 

Kjörnefnd vinnur nú að undirbúningi framkvæmdar prófkjörsins og mun utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefjast nk. þriðjudag, 3. mars. Þátttakendur í prófkjörinu munu velja í sæti 1 til 8, hvorki fleiri né færri, og bindandi niðurstaða verður í samræmi við prófkjörsreglur Sjálfstæðisflokksins.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla, vegna prófkjörsins, fer fram í Ásgarði, félagsheimili Sjálfstæðisflokksins í Eyjum og í Valhöll í Reykjavík. Allir flokksbundnir sjálfstæðismenn, sem og þeir sem skrá sig í flokkinn á kjörstað, hafa rétt til þátttöku í prófkjörinu.

Kjörnefnd fagnar miklum áhuga á þátttöku í prófkjörinu og þeim  fjölbreytta og góða hópi fólks sem gefur kost á sér til kjörs. Þessi hópur spannar breitt aldursbil og jafn fjöldi karla og kvenna er í framboði.

Kjörnefnd vonast til að sjálfstæðismenn fjölmenni á kjörstað og taki þannig þátt í að raða upp sterkum og sigurstranglegum framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, segir í tilkynningu frá kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Reyktur lax frá Laxey til styrktar ÍBV handbolta
Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.