Öskudagurinn var litríkur og skemmtilegur í Eyjum eins og ávallt en miðbærinn hreinlega iðaði af trúðum, kúrekum og allskyns verum úr þessum heimi og öðrum. Krakkarnir sungu fyrir starfsmenn fyrirtækja og fengu góðgæti að launum eins og vera ber. Hér að neðan er hægt að nálgst fjölmargar myndir sem þeir Óskar Pétur Friðriksson og Arnar Júlíusson tóku í dag.