Rekstur málefna fatlaðra skilað til ríkisins?

Frá árinu 1997 hefur Vestmannaeyjabær verið með þjónustusamning við ríkið um rekstur málaflokks fatlaðra. Síðasti þjónustusamningur sem var til 4ra ára rann út síðustu áramót og enn hafa ekki náðst samningar um rekstur málaflokks fatlaðra milli Vestmannaeyjabæjar og félagsmálaráðuneytisins. Mikið ber á milli rekstrarkostnaðar Vestmannaeyjabæjar vegna þessa mikilvæga málaflokks og framlags ráðuneytisins. Núverandi framlög ríkisins […]

Styrkir til úrbóta í umhverfismálum

Ferðamálastofa hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2008. Úthlutað verður um 50 milljónum króna og skiptist upphæðin í þrjá meginflokka. 1. Styrkir til minni verkefna:2. Stærri verkefni á fjölsóttum ferðamannastöðum:3. Uppbygging á nýjum svæðum: Umsóknarfrestur er til 28. janúar 2008 Eitt helsta aðdráttarafl Íslands í hugum ferðamanna, innlendra sem […]

Milljarðaviðskipti með Kaupþingsbréf

Fjárfestingarfélagið Gnúpur seldi bréf í Kaupþingi í gærmorgun fyrir að minnsta kosti tuttugu milljarða króna. Gnúpur er í eigu Magnúsar Kristinssonar, Kristins Björnssonar og Þórðar Más Jóhannessonar og hefur verið meðal fimm stærstu hluthafa í Kaupþingi. Í sömu viðskiptalotu voru tuttugu milljarðar til viðbótar seldir. Hluti af því var bréf sem Kaupþing átti. Viðskipti með […]

Búist við stormi á Suður- og Vesturlandi

Created by PhotoWatermark Professional

Veðurstofan hefur sent frá sér viðvörun, en búist er við stormi sunnan- og vestantil á landinu seint í kvöld. Gert er ráð fyrir suðlægri átt 5-10 m/s. Skúrir eða slydduél sunnan- og vestanlands, en annars yfirleitt þurrt og léttskýjað með köflum. Suðaustan 10-18 m/s suðvestan og vestanlands og dálítil rigning eftir hádegi. Vaxandi suðaustan átt […]

105.000 tonn af síld veidd í Grundarfirði

Síldveiðiflotinn er búinn að veiða tvo þriðju af útgefnum síldarkvóta. Þessi afli hefur nær allur veiðst á litlu svæði í Grundarfirði. Margir bátar eru langt komnir með kvótann. Hafrannsóknastofnun er við rannsóknir í firðinum en í fyrra mældi stofnunin gífurlegt magn síldar á því svæði sem nú gefur ævintýralega veiði.Samkvæmt tölum Fiskistofu er síldveiðiflotinn búinn […]

Amerískar Súkkulaðibitakökur

Nú eru smákökkur fjöldaframleiddar í eldhúsum á Íslandi og má gera ráð fyrir að hver einstaklingur borði nokkra tugi fyrir jólin. Eyjar.net birta hér uppskrift að góðri smáköku en þetta eru amerískar súkkulaðibitakökur. 1 bolli mjúkt smjör 3/4 bollar sykur 3/4 bollar púðursykur 1 tsk. vanilludropar 2 egg 2 1/4 bollar hveiti 1 tsk. matarsódi […]

Hver er þessi Guð?

Mér var sögð eftirfarandi saga sem hún væri sönn, og hef ég enga ástæðu til að rengja sögumanninn. En svo var að einn daginn pikkaði ungur drengur í móður sína og spurði hvernig hárið á Guð væri, hvort það væri slétt eða krullað. Þetta var svo sem ekkert óvanalega spurning, enda fjölskyldan trúuð, og trúmál […]

ÁRA-MÓTIÐ 2007

Skemmtiboltakeppni 2.flokks karla ÍBV. Innanhúsknattspyrnumót 29. desember kl. 15-17 og er fyrir blönduð lið hópa og fyrirtækja. Léttleiki í fyrirúmi, sannkölluð fótboltaveisla fyrir konur og karla, firmakeppni og hópakeppni þar sem “sá sigrar sem tekur þátt!” Tilvalið að fyrirtæki skori á hvert annað og hristi jólaspikið af starfsmönnum. Þora Glitnir og Sparísjóðurinn að keppa? Ná […]

2 úr ÍBV í 28 manna hóp landsliðsins

Í dag var valið í 28 manna hóp fyrir U-16 ára landslið Íslands eða öllu heldur strákar fæddir árið 1992. Voru 2 leikmenn frá ÍBV valdir í þennan hóp en það eru þeir Kristján Tómasson og Ólafur Sigurðsson. Hafa þessir peyjar verið að standa sig virkilega vel með 10.flokk félagsins ásamt því að vera að […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.