Milljarðaviðskipti með Kaupþingsbréf

Fjárfestingarfélagið Gnúpur seldi bréf í Kaupþingi í gærmorgun fyrir að minnsta kosti tuttugu milljarða króna. Gnúpur er í eigu Magnúsar Kristinssonar, Kristins Björnssonar og Þórðar Más Jóhannessonar og hefur verið meðal fimm stærstu hluthafa í Kaupþingi. Í sömu viðskiptalotu voru tuttugu milljarðar til viðbótar seldir. Hluti af því var bréf sem Kaupþing átti. Viðskipti með bréf Kaupþings í gær voru því yfir fjörutíu milljarðar króna.

Um tíu fjárfestar keyptu þessa fjörutíu milljarða samkvæmt upplýsingum Markaðarins. Stærsta hlutinn tók fjárfestingarfélagið Gift, sem stofnað var 15. júní síðastliðinn af Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingum. Mun Gift eiga í kringum fjögur prósent í Kaupþingi eftir viðskiptin. Straumborg, félag í eigu Jóns Helga Guðmundssonar í Byko, keypti einnig hluti að markaðsvirði 6,4 milljarðar króna. Eiga félög tengd Straumborg því rúm 3,5 prósent í Kaupþingi eftir viðskiptin. Þá mun Kaupfélag Skagfirðinga einnig hafa keypt hluti í bankanum í viðskiptum gærdagsins.

Fjárfestingafélagið Gnúpur hefur með þessu losað um stóra stöðu í Kaupþingi. Á föstudaginn keypti Magnús Kristinsson, einn þriggja eigenda Gnúps, bréf í Kaupþingi af félaginu fyrir tæpa fjóra milljarða króna. Í gær fékk Gnúpur að minnsta kosti tuttugu milljarða króna fyrir sinn hlut. Ljóst er að Gnúpur tapar milljörðum í þessum viðskiptum. Þórður Már Jóhannesson svaraði ekki skilaboðum í gær.

Þeir sem Markaðurinn talaði við líta þessar sviptingar jákvæðum augum. Tekist hafi að vinda ofan af fjárhagserfiðleikum Gnúps um leið og fjárfestar hafi nýtt sér kauptækifæri í Kaupþingi.
Gengi Kaupþings hækkaði um tæp fjögur prósent.

Nýjustu fréttir

„Þetta hefur verið dans á rósum“ – hættir eftir 50 ára starf
Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH
Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Mugison með tónleika á Skansinum
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.