Ekki hægt annað en að fara fram á sigur

Created by PhotoWatermark Professional

Hermann Hreiðarsson var ekki með í tapinu á móti Lettum á laugardaginn og var sárt saknað í íslensku vörnini. Hann vildi lítið tjá sig um þann leik á blaðamannafundi í gær. „Sá leikur er bara búinn. Við erum hundsvekktir með úrslitin en nú er bara kominn nýr leikur og það er gott að fá tækifæri […]

Flugfélag Íslands og Vegagerðin skrifa undir samning um flug til Vestmannaeyja

Flugfélag Íslands hefur skrifað undir samning við Vegagerðina um flug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Nýr samningur tekur gildi þann 01. nóvember 2007 og gildir til loka ársins 2009 en möguleiki er að framlengja samninginn um tvö ár til viðbótar eða til loka ársins 2011.Flugfélag Íslands tók aftur upp flug til Eyja fyrir réttu ári og […]

40.000.000 kr fyrir hvað?

Nú eru svokallaðir stofnfjáreigendur Sparisjóðs okkar Vestmannaeyinga búnir að koma málum þannig fyrir að þau geta selt hlut sinn. Þetta gerðu þau með því að breyta reglum um Sparisjóð okkar Vestmannaeyinga. Nú getur hver einstaklingur selt sinn hlut fyrir 40.000.000 kr.       Ég hef verið að hugsa um það hvernig þessu fólki líði þegar […]

Íslenska vörnin er best með Hermann innanborðs

Eyjólfur Sverrisson hefur notað níu varnarmenn í undankeppni EM og gengur misvel eftir því hverjir spila. Íslenska landsliðið þarf að endurskipuleggja varnarleikinn eftir útreiðina gegn Lettum á laugardag. Landsliðsþjálfarinn Eyjólfur Sverrisson á ás upp í erminni fyrir leikinn á móti Liechtenstein annað kvöld. Vörn íslenska landsliðsins í knattspyrnu er nefnilega sterkust með Hermann Hreiðarsson. Þetta […]

Ályktun kvenna í Frjálslynda flokknum vegna Margrétar Sverrisdóttur

Stjórn Landsambands kvenna í Frjálslynda flokknum, harmar að sundrung skyldi verða í Frjálslynda flokknum s.l. vetur þegar Margrét Sverrisdóttir og nokkrir stuðningsmenn hennar kusu að segja sig úr Frjálslynda flokknum eftir að hafa tapað í varaformannskjöri fyrir Magnúsi Þór Hafsteinssyni. Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum bendir á að Margrét Sverrisdóttir benti réttilega á hversu óeðlilegt […]

Hannes ábyrgist vatnalögin

Bæjarstjóri Vestmannaeyja brást skjótt við, eins og hans er von og vísa, í kjölfar skrifa um vatnslögnina í gær. Sendi hann frá sér tilkynningu um að Hannes Smárason, fyrir hönd Geysir Green Energy, hafi lýst því yfir að félagið muni styðja ákvörðun HS (hitaveitunnar, ekki Hannesar) um að leggja nýja vatnslögn til Eyja.  Jafnframt upplýsir bæjarstjórinn að samningar […]

Er meistarakokkur á þínu heimili?

www.eyjar.net mun birta neðst á síðunni fyrir neðan eyjabloggarana uppskriftir sem lesendur geta sent inn á tölvupóstinn eyjar@eyjar.net . Flest elskum við að borða og öllum eigum við okkar uppáhaldsmat eða uppskrift og því ekki að deila henni með öðrum. Fyrsta uppskrift er frá vefsíðunni www.cafesigrun.com og ritstjóri www.eyjar.net prufaði að elda þessa uppskriftir en þó með […]

Ný neðansjávarleiðsla á næsta ári

Hitaveita Suðurnesja hefur samið við NKT um framleiðslu á nýrri átta tommu neðansjávarvatnsleiðslu og við JD Contractor ApS um lagningu hennar milli lands og Eyja. Fyrir eru tvær vatnsleiðslur sem komnar eru til ára sinna enda eru þær 40 ára gamlar.Ívar Atlason, tæknifræðingur hjá HS, sagði að leiðslurnar sem fyrir eru væru ekki í góðu […]

Ég er nú svolítið hugmyndaríkur og aldrei að vita hvaða snilldar hugmynd ég fengi sem framkvæmanleg væri í eyjum.

www.eyjar.net heldur áfram að heyra í brottfluttum eyjamönnum bæði innanlands sem og erlendis með þeim tilgangi að fá að vita hvar þau eru stödd í lífinu og hvaða viðhorft þau hafa til Vestmannaeyja. Að þessu sinni heyrðum við í Stefáni Þór Steindórssyni en Stefán er búsettur í Reykjavík og vinnur á Arkitektarstofunni arkitektur.is. Nafn:Stefán Þór Steindórsson […]

Elliði Vignisson svarar Sigurði Vilhelmssyni

Sæll félagi Sá á þínu fína vefsvæði að þú hefur, eins og svo margir áhyggjur af vatnsmálum okkar Eyjamanna. Meðal annars segir þú:“Nú væri gaman að vita frá hverjum bæjarstjórinn okkar hafði þetta loforð um nýja vatnslögn til Eyja og hvort því loforði hafi fylgt einhver skilyrði.  Af þessum nýjustu fréttum að dæma hefur því […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.