Engin meiriháttar mál komu upp í nótt

Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt við að sinna ýmsum verkefnum í tengslum við þjóðhátið án þess að nein meiriháttar mál kæmu upp. Tveir gistu fangageymslu í morgun vegna líkamsárása. Skýrslutökur yfir þeim fara fram í dag. Nokkur fíkniefnamál komu upp í gær og í nótt. (meira…)

Árni Johnsen fær liðsauka

Samkvæmt áræðanlegum heimildum Eyjafrétta verða tveir stuðboltar með Árna Johnsen í brekkusöngnum. Þetta eru Eyjamennirnir Jarl Sigurgeirsson og Sæþór Vídó sem báðir spila með hljómsveitinni Tríkot. Árni Johnsen hefur einn séð um brekkusönginn undanfarna áratugi en kallar nú til þá Jarl og Sæþór, sem hafa mikla reynslu af gítarspili og stuði. Brekkusöngur Árna er einn […]

�?venju þægir þjóðhátíðargestir

Nóttin var róleg í Vestmannaeyjum miðað við aðfaranótt sunnudags um Verslunarmannahelgi. Að sögn lögreglumanns á vakt voru Þjóðhátíðargestir óvenjurólegir og voru menn því ánægðir með gang mála í Herjólfsdal. Þrír gistu þó fangageymslu en lögreglan benti á að þar væri „ekki uppselt“ ennþá. (meira…)

Vefmyndavél í Herjólfsdal

Hægt er að fylgjast með þjóðhátíðinni í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum á mbl.is gegnum vefmyndavél sem sett hefur verið upp á stóra sviðinu og sýnir brekkuna og danspallinn. Útsendingin, sem er í samstarfi við Svar tækni og raftækjavinnustofuna Geisla í Vestmannaeyjum stendur til klukkan 2 í nótt og verður einnig annað kvöld. (meira…)

Lögregla áætlar að 15 þúsund manns hafi verið í Dalnum í nótt

Stöðugur straumur gesta hefur verið síðasta sólarhringinn til Eyja og áætlar lögregla nú að fjöldi gesta sé kominn í 15 þúsund og enn eru margir væntanlegir í dag, kvöld og á morgun. Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum síðustu nótt, en ekki komu upp nein meiriháttar óhöpp. Ein líkamsárás var kærð en þar var […]

Mikil og góð stemmning í Herjólfsdal í gær

Fyrsti sólarhringur þjóðhátíðar Vestmannaeyja gekk í flesta staði mjög vel í gær. Þjóðhátíðin var sett við hátíðlega athöfn um miðjan dag í blíðskaparveðri. Almennt er talið að sjaldan hafi jafn margir verið við setningu þjóðhátíðarinnar og í ár og fjölmargir mættu prúðbúnir í Dalinn. Eftir setningum tók við barnadagskrá og heimamenn héldu veislur í hvítu […]

15.000 á methátíð í Eyjum

Þjóðhátíð Vestmannaeyja er sú fjölmennasta til þessa en um 15.000 manns eru nú í Eyjum. Ein líkamsárás hefur verið kærð eftir nóttina. Lögregla segir hátíðina ganga ótrúlega vel miðað við mannfjölda. Tveir 17 ára strákar lentu í áflogum í Herjólfsdal í nótt og í kjölfarið barst kæra um líkamsárás til lögreglu. (meira…)

Bílastæðin við Landeyjahöfn full

Nú eru öll þau 2000 bílastæði, sem búið var að útbúa í Landeyahöfn, orðin full. Eimskip segir, að ferðalangar, sem ekki eigi bókaða ferð fyrir bílinn sinn með til Eyja, verði að leita annara ráða. Í tilkynningu frá Eimskip segir Ólafur Hand, markaðsstjóri félagsins að fjöldinn sem sæki Vestmannaeyjar heim á þjóðhátíð sé búinn að […]

Eðlilegra að heyra í manni hljóðið áður en lagt var af stað

„Það hefur tvisvar verið haft samband við mig vegna þessarar mynd­ar en í bæði skiptin var það eftir að búið var að ákveða að gera hana. Hefði kannski verið eðlilegra að heyra í manni hljóðið áður en lagt var af stað en greinilega hefur maður lítið að segja um þetta.“ sagði Guðlaugur Friðþórsson, um mynd­ina […]

�?etta er þakklátt starf

Munavarsla hefur verið í boði á Þjóðhátíð í mörg ár, fyrst í gámum en flutti inn í Herjólfsbæ þegar hann reis fyrir nokkrum árum. Þar er að­staða til fyrirmyndar og geta þeir sem nýta sér þjónustu munavörsl­unnar gengið að hlutunum vísum þegar þeir þurfa á þeim að halda. Þetta er þakklátt starf enda mikill munur […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.