Tunglfiskur barst Fiska- og Náttúrugripasafninu í Eyjum

Fiska- og Náttúrugripasafni Vestmannaeyja barst í dag Tunglfiskur. Áhöfnin á Kap VE dró fiskinn úr hafinu um það bil 60 sjómílur út af Reykjanesi en Kap var þar við Makrílveiðar. Reynt verður að stoppa fiskinn upp en fyrir er á safninu eitt eintak. Tunglfiskur er þyngsti beinfiskur jarðar og getur orðið yfir tvö tonn að […]
Safn um byggð sem fór undir hraun

Um goslokahelgina verður opnað nýtt kaffihús í miðbæ Vestmannaeyja, Vinaminni-kaffihús. Vinaminni verður staðsett í Baldurshaga og það er Arnór bakari sem rekur kaffihúsið. Samhliða opnuninni, verður opnuð ný bakarísverslun við hlið kaffihússins. Helga Jónsdóttir, sem á og rekur Arnór bakara ásamt manni sínum, Arnóri Hermannssyni, bakarameistara, sagði í samtali við Fréttir að kaffihúsið væri tengt […]
Flugfélagið Ernir hefur áætlunarflug til Eyja

Frá og með 4. ágúst næstkomandi tekur Flugfélagið Ernir við áætlunarflugi til Vestmannaeyja en félagið hyggst fljúga tvær ferðir á dag, alla daga vikunnar. Forráðamenn félagsins gera ráð fyrir að ferþegastreymi í áætlunarflugum félagsins tvöfaldist en síðastliðin fjögur ár hefur Flugfélagið Ernir flogið til Hafnar í Hornafirði, Sauðárkróks, Bíldudals og Gjögurs. (meira…)
Afar ánægjuleg þróun

„Fasteignamat ríkisins, FMR, ákvarðar fasteignamat allra eigna í landinu en matið á að vera sem næst markaðsvirði eigna. Í Vestmannaeyjum var fasteignaverð afskaplega lágt um margra ára skeið, síðustu árin hefur það farið hækkandi og nálgast nú byggingaverð þrátt fyrir að hafa ekki náð því enn,“ sagði Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs þegar hún var beðin […]
Haffi Haff mætir í partíið

Söngvarinn og Wipe-out sigurvegarinn að nafni Haffi Haff mun mæta á Þjóðhátíðina 2010. Hann ætlar að merkja hátíðina með sínu handbragði enda taka allir eftir þessum litríka listamanni hvar sem hann fer. Mun ástarpensillinn syngja á kvöldvökunni á laugardagskvöld en kvöldvakan hefst kl 20.30 og stendur til 0:00 líkt og áður. Hér að neðan má […]
Led Zeppelin tónleikum frestað

Vegna óviðráðanlegra orsaka hjá hljómsveitinni Dúndurfréttum, hefur verið ákveðið að fresta Led Zeppelin tónleikunum sem fyrirhugaðir voru í kvöld. Sveitin setti sig í samband við forráðamenn Hallarinnar í morgun og tilkynntu frestunina. Það verður hins vegar nóg um að vera í Höllinni annað kvöld, Eyjatónleikar og matarveisla Einsa Kalda, Úrval úr matarkistu Eyjanna. (meira…)
�?að þarf nýjan Herjólf milli lands og Eyja

Herjólfur er kominn til ára sinna og því miður eru bilanir alltof tíðar. Það er alveg á hreinu að það þarf nýtt skip í siglingar milli lands og Eyja. Verði Herjólfur vélarvana fyrir utan Landeyjahöfn gæti það örugglega skapað mikið hættuástand. Það er ekkert grín að vera með 300-400 farþega og eiga á hættu að […]
Herjólfur lagður af stað

Farþegaskipið Herjólfur lagði af stað í síðari áætlunarferð sína nú fyrir skömmu en skipið varð vélarvana við brottför fyrr í dag. Eftir að búið var að binda skipið við bryggju, fór kafari niður að skrúfu og stýri skipsins til að kanna hugsanlegar skemmdir. Þær reyndust engar og hélt skipið úr höfn tæpum tveimur klukkustundum á […]
Herjólfur vélarvana í Vestmannaeyjahöfn

Herjólfur er nú vélarvana í Vestmannaeyjahöfn og rak skipið stjórnlaust um tíma. Ekki er vitað hvað olli því að skipið missti afl en skipið rak frá bryggju við brottför og virðist hafa misst afl strax og landfestar voru leystar. Farþegaskipið rak frá bryggju en Frár VE og hafnsögubáturinn Lóðsin reyna nú að koma farþegaskipinu að […]
Heimir stýrir ekki ÍBV í næsta leik

Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, er staddur á Englandi þar sem hann er að klára nám sem gefur UEFA Pro þjálfaragráðuna. Heimir mun af þeim sökum missa af leik ÍBV og Stjörnunnar í Pepsi-deildinni á mánudag. Í fjarveru hans mun aðstoðarþjálfarinn Dragan Kazic stýra Eyjamönnum ásamt Hjalta Kristjánssyni þjálfara KFS. (meira…)