Heita á stjórn og stofnfjáreigendur í Sparisjóðnum að standa saman

Á fundi bæjarstjórnar í gær var fjallað um málefni Sparisjóðs Vestmannaeyja en Elliði Vignisson, bæjarstjóri var með framsögu um málið. Þar kom fram að lagt hafi verið fyrir fulltrúa Vestmannaeyjabæjar í stjórn Sparisjóðsins að verja sjóðinn fyrir yfirtöku annarra aðila. Elliði sagði að sporin hræði og benti á atburðarrásina í Sparisjóði Hafnarfjarðar þar sem stofnfjáreigendur […]
Vaktin komin út

41. tölublað Vaktarinnar er nú á leiðinni inn á hvert heimili í Vestmannaeyjum en blaðið er einnig hægt að lesa hér á www.sudurland.is. Í blaðinu þessa vikuna ræðir Vilhelm G. Kristinsson við Grím Gíslason um fyrirtæki hans, Grím kokk. Þá er fjallað um skipalyftuna en rúmt ár er síðan lyftan eyðilagðist. Elliði Vignisson segist bæði […]
Afar mikilvæg að vilji heimamanna komi skýrt fram

Auglýsing Ríkiskaups um forval vegna Bakkafjöruútboðs hefur vakið talsverða athygli en auglýsingin birtist í Morgunblaðinu á sunnudag. Þar er auglýst eftir þátttakendum í forvali vegna lokaðs útboðs fyrir rekstur ferjusiglinga milli Vestmannaeyja og Bakkafjöru. Elliði Vignisson, bæjarstjóri segist bæði fagna auglýsingunni og setja ýmis spurningamerki við fyrirhugað útboð. (meira…)
Ian Jeffs eini leikmaður ÍBV í liði ársins í 1. deild

Síðdegis í dag var lið ársins í 1. deild opinberað í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal en vefurinn Fótbolti.net stendur fyrir valinu. Það eru þjálfarar og fyrirliðar deildarinnar sem völdu lið tímabilsins en Ian Jeffs er eini leikmaður ÍBV sem komst í ellefu manna byrjunarlið 1. deildar sumarið 2007. (meira…)
Vestmannaey seld til Argentínu

Útgerðarfyrirtækið Bergur-Huginn hf. hefur selt togarann Vestmannaey sem hefur legið við bryggju síðustu misseri. Útgerðin fékk tvo nýja báta á árinu, Vestmannaey og Bergey og var gömlu Vestmannaey í kjölfarið lagt. Hið gamla aflaskip mun fá nýtt hlutverk við strendur Argentínu en það er spænskt útgerðarfyrirtæki sem keypti skipið. (meira…)
Samgöngurráðherra vill Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýrinni

Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði í kvöldfréttum á Stöð 2 að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri væri velkominn í heimsókn hvenær sem er en ítrekaði jafnframt að hann hefði ávallt verið þeirrar skoðunar að flugvöllurinn ætti að vera í Vatnsmýrinni og tók fram að til stæði að byggja hann upp svo að Iceland Express gæti fengið […]
Nýr þjóðgarðsvörður
Regína Hreinsdóttir landfræðingur hefur verið ráðin þjóðgarðsvörður í Skaftafelli. Hún tekur við af Ragnari Kristjánssyni sem gegnt hefur starfinu frá árinu 1999. (meira…)
Umhverfis-verðlaun í Vík

Fyrstu umhverfisverðlaun Mýrdalshrepps voru afhent á menningarhátíðinni Regnboganum á dögunum. Sigrún Guðmundsdóttir formaður nefndarinnar afhenti Jóni Gunnari Jónssyni, Austurvegi 11b verðlaunin en hefur garður hans lengi verið rómaður fyrir snyrtimennsku og fegurð. (meira…)
Kærðir fyrir vatnsþjófnað

Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur kært átta sumarhúsaeigendur í Grímsnesi fyrir vatnsþjófnað. Fyrirtækið sakar þá um að skammta sér meira heitt vatn en þeir greiða fyrir með því að rjúfa innsigli á svokölluðum mælingarhemli eða með því að tengja fram hjá mælinum. (meira…)
�?jóðahátíð
Stefnt er að því að halda þjóðahátíð í Þorlákshöfn þann 16. febrúar næstkomandi. Er þetta í annað sinn sem hátíðin er haldin en hún var síðast haldin haustið 2005. Líkt og áður mun Árnesingadeild Rauða Kross Íslands styrkja hátíðina auk þess að vera með kynningarbás á hátíðinni.Á þjóðahátíðinni kynna þær íbúar þeirra þjóða sem búa […]