Sævar �?ór bestur og markakóngur deildarinnar
Á þriðja hundrað manns voru í lokahófi knattspyrnudeildar Selfoss sem þótti takast afar vel. Sævar Þór Gíslason var valinn leikmaður ársins. Hann var einnig markakóngur deildarinnar með hvorki fleiri né færri en 20 mörk í sumar. (meira…)
Fjölnismenn mættir til Eyja

Í dag klukkan 17.15 leikur ÍBV gegn Fjölni í síðasta leik 1. deildar en möguleiki á sæti í úrvalsdeild felst í sigri og að Reynir Sandgerði leggi Þrótt að velli. Allir leikir umferðarinnar fara fram á sama tíma og lið verða því að mæta til leiks, ekki er möguleiki að fresta leiknum. Hins vegar er […]
Bæjarstjórn Vestmannaeyja býður fyrirmynd að viðræðugrundvelli

Ef kvótaskerðing stjórnvalda Hafrannsóknastofnunar gengur eftir í þrjú ár eins og ætlað er a.m.k. þá nemur skerðing tekna og efnahagsleg áhrif um 10 milljörðum króna aðeins í Vestmannaeyjum, þessari stærstu verstöð landsbyggðarinnar. Bæjarstjórn Vestmannaeyja brást skjótt við og lét vinna mjög faglega úttekt á áhrifum skerðingarinnar og bauð síðan upp á viðræður við stjórnvöld til […]
Andri stigameistari og efnilegasti kylfingur ársins

Nú er lokið Kaupþingsmótaröð unglinga í golfi og verðlaunaafhending fór fram í Laugardagshöllinni laugardaginn 22. september sl.Andri Már Óskarsson úr GHR varð stigameistari unglinga 16 til 18 ára. Þetta er frábær árangur hjá Andra Má þar sem hann er á fyrsta ári í þessum aldurshóp. (meira…)
Verkefninu lýkur um helgina
Nú er hver að verða síðastur til að taka þátt í verkefninu fjölskylan á fjallið í ár. Þau fjöll sem HSK tilnefndi í ár eru Þórólfsfell í Fljótshlíð og Langholtsfjall í Hrunamannahreppi. Á fjöllunum eru gestabækur sem fólk er beðið um að skrifa sig í ásamt heimilisfangi og/eða símanúmeri. (meira…)
Tæplega 60 starfsmönnum Humarvinnslunnar á �?orlákshöfn sagt upp

Stjórn Humarvinnslunnar ehf hefur tekið ákvörðun um að segja upp öllu starfsfólki í landvinnslu fyrirtækisins í Þorlákshöfn, 59 manns, að því er kemur fram á mbl.is. Uppsagnarfrestur er mismunandi eftir starfsaldri, á bilinu 1-6 mánuðir. (meira…)
Frítt á leikinn á morgun
Glitnir og Eignarhaldsfélagið Fasteign bjóða Eyjamönnum og gestum frítt á leik ÍBV og Fjölnis á morgun kl. 17.15. Kl.16.30 mun Þorkell Sigutjónssson taka fyrstu skóflustunguna að nýju knattspyrnuhúsi við Týsheimilið, ásamt nokkrum iðkendum af yngstu kynslóðinni hjá ÍBV. Þar á undan eða klukkan 15.00 fer fram í sal 2 í Íþróttamiðstöðinni lokahóf yngri flokkanna fyri […]
Situr ekki í súpunni

Á dögunum var enn aukið við þjónustuna í Skálanum í Þorlákshöfn. Nú er súpa dagsins í boði í hádeginu alla virka daga frá kl. 11:30 til 13:30. Verður kappkostað að bjóða gestum hinar ýmsu súputegundir þannig að viðskiptavinir sitja ekki að sömu súputegundinni nema á margra daga fresti. (meira…)
Samstarf sunnlenskra safna eflt
Verkefnið Safnaklasi Suðurlands hefur nýlega hlotið styrk frá Vaxtarsamningi Suðurlands og Vestmannaeyja. Meðal markmiða með stofnun safnaklasans er að efla samstarf safnanna á svæðinu t.d. með sameiginlegum uppákomum og miðlun safnmuna milli safna. Undirbúningur þessa samstarfs hófst sl. vor með fundum sem Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og SASS boðuðu til. Á fundina mætti safnafólk af öllu svæðinu […]
Hvers eigum við að gjalda?

„En einn skuggi hvílir yfir þessu öllu saman, það er aðför stjórnvalda að Vestmannaeyjum. Fréttir hafa bent á í mörg ár hvernig atvinna og tekjur hafa verið færðar héðan með handafli í formi aflaheimilda sem hafa verið færðar öðrum án endurgjalds,“ segir Ómar Garðarsson ritstjóri m.a. í grein sem hann kallar Vestmannaeyjar tækifærana. Er hann […]