Sunnudagaskóli og messa næsta sunnudag

“Með mikilli gleði hefjum við nú messuhald og sunnudagaskóla að nýju í Landakirkju.” segir í frétt á vef Landakirkju. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl. 11 með öllu fjörinu sem honum fylgir. Kl. 14. er síðan guðsþjónusta þar sem sr. Viðar prédikar og þjónar fyrir altari. Kitty og kórinn verða á sínum stað. Það ríkir […]
Vantrausti haldið til streitu

Aðalfundur kjördæmaráðs Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi var haldinn s.l. laugardag. Þar var tekin ákvörðun um að viðhafa prófkjör við val á framboðslista. Páll Magnússon sagðist sækjast eftir endurkjöri sem oddviti listans, Ásmundur Friðriksson tilkynnti að hann sæktist eftir öðru sæti. Vilhjálmur Árnason sem situr nú í þriðja sæti listans sagðist stefna hærra og þá tilkynnti um […]
Breytt deiliskipulag við sorpsstöð, Áshamar og á hafnarsvæði

Hjá Vestmannaeyjabæ eru um þessar mundir fjögur skipulagsmál í kynningarferli. Þessi mál ásamt fylgigögnum má nálgast hér að neðan. Nýtt deiliskipulag fyrir móttökustöð úrgangsefna og fyrirhugaða brennslustöð á svæði I-1. Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar samþykkt 28. janúar 2021 að kynna nýtt deiliskipulag skv. 41. gr. laga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir móttökustöð úrgangsefna […]
Harpa Valey í landsliðshópi Arnars

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari hefur valið 19 leikmenn til æfinga hjá A landsliði kvenna, hópurinn hittist og æfir á höfuðborgarsvæðinu 17. – 21. febrúar nk. Næsta verkefni hjá stelpunum okkar er 19. – 21. mars nk. en þá fer fram undankeppni HM. Liðið drógst í riðil með Norður-Makedóníu, Litháen og Grikklandi. Riðilinn verður leikinn í Norður-Makedóníu. […]
17 útskrifuðust úr Skrifstofuskólanum

Valgerður Guðjónsdóttir forstöðumaður Visku, segir hópinn í Skrifstofuskólanum, sem nú lauk nýverið, hafa verið fjölbreyttan og námið hafa gengið vel. Forsagan er sú að Sólrún Bergþórsdóttir, náms- og starfsráðgjafi Visku óskaði eftir því að námið yrði kennt þar sem hún hefði orðið vör við áhuga á því að nám sem þetta yrði í boði í Vestmannaeyjum. Áður hafði […]
Fjarfundartækni nýtt hjá sýslumanni og héraðsdómi

Þau tímamót urðu í dag að fjarfundarbúnaður var notaður í dómsal Héraðsdóms Suðurlands í Vestmannaeyjum í fyrsta sinn. Dómssalur héraðsdóms Suðurlands er í húsnæði sýslumanns í Vestmannaeyjum við Heiðarveg og samnýta stofnanirnar fjarfundarbúnað í sinni starfsemi, sýslumaður fyrir fundi og fyrirtökur og héraðsdómur við meðferð dómsmála. Sérstakar heimildir þurfti til að sýslumenn og dómstólar gætu nýtt sér […]
Útgerðir í Vestmannaeyjum greiða 550 milljónir í veiðigjald

Fiskistofa hefur lokið álagningu veiðigjalds vegna ársins 2020. Alls nemur álagningin tæpum 4,8 milljörðum króna. Til samanburðar má hér sjá heildarálagningu veiðigjalds þrú síðastliðin ár: Ár Upphæð álagðs veiðigjalds 2020 4,8 milljarðar króna 2019 6,6 milljarðar króna 2018 11,3 milljarðar króna Gjaldendur Gjaldendur veiðigjalds á árinu 2020 voru alls 934. Þeir voru […]
Vestmannaeyjabær er í fyrsta sæti þegar kemur að þjónustu við barnafjölskyldur og fatlaða

Niðurstöður könnunar Gallup á þjónustu sveitarfélaga fyrir árið 2020 voru kynntar á fjar íbúafundi síðdegis í dag. Eru niðurstöður könnunarinnar mjög jákæðar varðandi þjónustu Vestmannaeyjabæjar. Vestmannaeyjabær er efst þeirra 20 stærstu sveitarfélaga landsins þegar spurt er um þjónustu við barnafjölskyldur og fatlaða. Sveitarfélagið er í öðru sæti þegar kemur að þjónustu við eldriborgara, þjónustu leikskóla, […]
Opinn fundur um samgöngu- og heilbrigðismál

Ágætu Eyjamenn. Í kvöld, miðvikudaginn 10. feb. kl. 20 – 21.30 boðar Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður VG í Suðurkjördæmi boðar til fjarfundar í kjördæmaviku Alþingis. Fundurinn er fyrst og fremst um samgöngu- og heilbrigðismál með áherslu á Vestmannaeyjar og er öllum opinn þannig að við getum getum á einfaldan hátt tekið þátt í honum heima […]
Glæsilegt starfsmannarými VSV í Króki tekið í gagnið

Hluti starfsmannarýmis í nýrri tengibyggingu Vinnslustöðvarinnar, Króki í Hafnargötu, var tekinn í notkun í dag. Starfsmenn í uppsjávarvinnslunni njóta einir herlegheitanna til að byrja með, það er að segja menn á vöktum á loðnuvertíð sem vonandi hefst í lok vikunnar eða í byrjun þeirrar næstu. Þannig verður líka hægt að aðgreina starfsmannahópa í fiskvinnslu VSV […]