Florentina Stanciu var heldur betur í banastuði gegn sínu gamla félagi úr Garðabænum, Stjörnunni þegar liðin mættust í næst síðustu umferð N1 deildar kvenna. Florentina varði hvorki fleiri né færri en 27 skot, þar af eitt víti en ÍBV hafði betur í leiknum 30:24. Eins og gefur að skilja, var það fyrst og fremst góður varnarleikur og ótrúleg markvarsla sem skóp sigur ÍBV en með honum tryggði liðið sér þriðja sæti deildarinnar, sem er frábær árangur. Ester Óskarsdóttir fór svo fyrir liði ÍBV í sóknarleiknum og skoraði 12 mörk.