Framúrskarandi fyrirtæki þriðja árið í röð
Vinnslustöðina er að finna á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi árið 2016. Einungis 1,77% allra íslenskra fyrirtækja standast skilyrði sem Creditinfo setur fyrir því að geta talist framúrskarandi. Vsv.is greindi frá.
Vinnslustöðin var líka á lista framúrskarandi fyrirtækja árin 2015 og 2014 og hefur því skorað þrennu að þessu leyti samfellt á þremur árum. �?að er árangur sem vert er að halda til haga!
Creditinfo upplýsir frekar um útnefningar framúrskarandi fyrirtækja á samkomu sem boðað er til í Reykjavík 25. janúar og fjármálaráðherra veitir þeim viðurkenningu sem mest hafa skarað fram úr.
Sjö skilyrði þarf fyrirtæki að uppfylla til að teljast framúrskarandi:
1. Fyrirtækið sé í lánshæfisflokki 1-3.
2. Rekstrarhagnaður (EBIT) og ársniðurstaða jákvæð þrjú ári í röð.
3. Eiginfjárhlutfall 20% eða meira en þrjú rekstrarár í röð.
4. Eignir hafi humið 80 milljónum króna eða meira þrjú ár í röð.
5. Framkvæmdastjóri skráður í hlutafélagaskrá.
6. Fyrirtækið virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo.
7. Fyrirtækið hafi skilað ársreikningi fyrir 1. september 2016.

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.