Starfsemi Taflfélags Vestmannaeyja á nýbyrjuðu ári hefst í kvöld miðvikudaginn 16. janúar með 1. umferð á Skákþingi Vestmannaeyja 2018. Keppt hefur verið um titilinn Skákmeistari Vestmannaeyja á hverju ári frá 1957. Umhugsunartími á skák er 60 mín. á hvorn keppenda og 30 sek. á leik. Teflt verður á miðvikudagskvöldum í skákheimili TV að Heiðarvegi 9 og einnig á sunnudögum kl. 13.00 verði ástæða til vegna fjölda umferða og frestaðra skáka. Reiknað er með að mótinu ljúki um 10. febrúar nk. Núverandi skákmeistari Vm. er Sigurjón �?orkelsson og verður hann meðal keppenda. Nánari upplýsingar um framkvæmd mótsins veitir Arnar Sigurmundsson form. Taflfélags Vm. í síma 822 0351.