Í dag, fimmtudaginn 20. september mun Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur halda fyrirlestur um eineldi, forvarnir og úrvinnslu eineltismála. Fyrirlesturinn er á vegum Æskulýðsvettvangsins og nefnist EKKI MEIR en tilefni fyrirlestursins er nýútkomin handbók sem ber sama titil. Fyrirlesturinn verður í Hamarsskóla og hefst klukkan 17:00.