Tekin hefur verið ákvörðun um að fella niður fyrri ferðir morgundagsins vegna veðurs og sjólags sem áætlaðar voru kl. 07:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 10:45 frá Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína. Ákvörðun sem þessi er alltaf tekin með hagsmuni farþega og áhafnar í huga, vonum við að því sé sýndur skilningur. Tilkynning varðandi seinni ferðir dagsins verður gefin út fyrir kl 15.00 á morgun, segir að endingu í tilkynningunni.