Fyrir stundu var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri Bónusverslun sem rís við Miðstræti í Vestmannaeyjum. Umhverfis og skipulagsráð samþykkti leyfi fyrir byggingunni á mánudag en undirbúningur hefur staðið yfir undanfarna mánuði.
�?að er byggingafyrirtækið Steini og Olli sem reisir og byrjað verður á umfangsmiklum jarðvegsframkvæmdum. Magnús Sigurðsson, hjá S&O sagði að hafist verði handa næstu daga. Ekki vill hann gefa út hvenær framkvæmdum lýkur og sagði að forráðmenn Bónus vildu ekki fara að gefa eitthvað út sem ekki er hægt að standa við.