Fyrsti loðnufarmurinn til Eyja kom í gærmorgun
Norska uppsjávarskipið Osterbris frá Björgvin kom í græmorgun með 450 tonn af loðnu. �?etta er fyrsti loðnufarmurinn sem kemur til Eyja á vertíðinni og fór til vinnslu í nýju uppsjávarvinnsluhúsi VSV.
Vinnslustöðin hefur tekið á móti og unnið bæði makríl og síld í nýja uppsjávarhúsinu frá því það var tekið í gagnið snemmvetrar 2016. Nú er komið að loðnunni og ekki fer hjá því að spenna sé í mannskapnum að hefjast handa, þótt hjólin fari að snúast í skugga verkfalls sjómanna.
�??Að sjálfsögðu er ánægulegt og spennandi að prufukeyra nýju uppsjávarvinnsluna við að frysta loðnuhrygnur og nú ætti að ríkja bjartsýni en ekki óvissan ein vegna loðnuveiða okkar,�?? segir Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri VSV.
�??Ástandið er óþolandi. Á sama tíma og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hefur margfaldað loðnukvótann er allur uppsjávarfloti Vinnslustöðvarinnar í höfn vegna þess að sami ráðherra þráast enn við að fallast á sjálfsagðar kröfur sjómanna um að farið verði skattalega með dagpeningagreiðslur þeirra á sama hátt og dagpeningagreiðslur opinberra starfsmanna og launafólks á almennum markaði.
Á þessu atriði strandar en samningar útvegsmanna og sjómanna liggja annars fyrir, eins og fram hefur komið. Furðulegast er að skattaleg meðferð dagpeninga heyrir undir fjármálaráðherra en ekki sjávarútvegsráðherra! Væri ekki ráð að forsætisráðherra tæki nú af skarið?�??
Af vsv.is.

Nýjustu fréttir

Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi
Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins
Erfitt tíðarfar undanfarið en góður afli hjá Kap VE
Prúðmannleg pólitík
Páskar í Landakirkju
Bræður frá Úkraínu fundu ró í Vestmannaeyjum 
Óskar og Sigurjón margfaldir aflakóngar
Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.