Fyrsti þingmaður okkar fer á kostum
Ásthildur Lóa er fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis. Á þingi síðan 2021 fyrir Flokk fólksins.

„Ég er mjög hugsi eftir þessi ummæli 1. þingmanns Suðurkjördæmis, stjórnarþingmannsins Ásthildar Lóu Þórsdóttur á þinginu í gær. Þar gerir hún gerir lítið úr þeim 26 sjávarútvegssveitarfélögum sem hafa skilað inn umsögn af því að þau eru ekki meirihluti sveitarfélaga á landinu og þá á ekki að hlusta á þeirra áhyggjur,“ segir Íris Róbertsdóttir á Fésbókarsíðu sinni í dag.

„En þetta eru ÖLL sjávarútvegssveitarfélögin og atvinnuveganefndin óskaði bara eftir umsögn frá þessum sveitarfélögum um frumvarpið, enda eiga hin 36 sem Ásthildur Lóa nefnir lítilla eða engra hagsmuna að gæta.

Gagnkvæm virðing og góð samskipti mikilvæg

Skyldi ríkisstjórnin hugsa eins varðandi önnur mál sem eru í þinglegri meðferð? Ef t.d. öll sveitarfélög á landinu nema þau sex sem tilheyra höfuðborgarsvæðinu eru sammála um eitthvað tiltekið mál ætti þá að hunsa umsagnir hina sex sveitarfélaganna og þeirra skoðun? Ég trú því ekki að það sé raunin enda fyndist mér það ekki góður bragur á neinu máli.

Ég vona svo sannarlega að þingmaðurinn sem er með þrjú mjög stór sjávarútvegssveitarfélög í sínu kjördæmi hlusti á athugasemdir þeirra og annarra sveitarfélaga og kynni sér þau sjónarmið sem þar koma fram.

Það færi vel á því að hún myndi draga þessi ummæli til baka þar sem ég veit að öll þau sveitarfélög sem senda inn umsagnir, um hin fjölmörgu mál, til nefnda Alþingis gera það af fagmennsku og til að huga að og tryggja hagsmuni sinna íbúa. Gagnkvæm virðing og góð samskipti eru mikilvæg fyrir alla aðila,“ segir Íris um þennan fyrsta þingmann Suðurkjördæmis og okkar Eyjamanna. Skelfilegt.

Nýjustu fréttir

Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.