Karlalið ÍBV í knattspyrnu leikur opnunarleik Íslandsmótsins í dag á Hásteinsvelli klukkan 16:00 þegar ÍA kemur í heimsókn. Miklar breytingar hafa orðið á liði ÍBV, sterkir leikmenn hafa horfið á braut en að sama skapi hafa nýir leikmenn gengið í raðir félagsins og fremstur þar í flokki er enski markvörðurinn David James.