Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Kærendur segja að aðrar lausnir hafi verið í boði og benda á framkvæmdir og kostnað
ithrottam
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Í kæru sem lögð hefur verið fram til kærunefndar útboðsmála vegna útboðs Vestmannaeyjabæjar um rekstur heilsuræktar eru ekki aðeins gerðar athugasemdir við hæfiskröfur útboðsins. Í kærunni eru einnig rakin atriði sem kærendur telja varpa ljósi á hvernig staðið hafi verið að rekstri heilsuræktarinnar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja á meðan málið hefur verið til meðferðar.

Þar er meðal annars bent á að annar rekstraraðili hafi lýst yfir vilja til að halda rekstri stöðvarinnar áfram tímabundið á meðan úrlausn fengist í kærumálinu. Samkvæmt kærunni var þeirri beiðni hafnað af bæjarstjóra.

Tilboð um tímabundinn rekstur

Í kærunni kemur fram að rekstraraðilinn Hressó hafi lýst yfir vilja til að halda rekstri heilsuræktarinnar áfram á meðan beðið væri niðurstöðu í kærumálinu.

Kærendur halda því fram að sú leið hefði getað tryggt áframhaldandi rekstur án þess að bærinn þyrfti að gera nýjan samning á meðan óvissa ríkti um útboðsferlið. Samkvæmt kærunni hafnaði bæjarstjóri þeirri beiðni.

Telja leigu lægri en áður

Kærendur benda einnig á að samkvæmt gögnum málsins hafi Hressó áður greitt hærri leigu fyrir aðstöðuna en núverandi rekstraraðili. Þeir telja því athyglisvert að Vestmannaeyjabær hafi valið að gera samning við aðila sem tengist kærumálinu, þrátt fyrir að leigan sé lægri.

Bent á framkvæmdir og mögulegan kostnað

Í kærunni er einnig fjallað um framkvæmdir sem gerðar hafa verið í húsnæði Íþróttamiðstöðvarinnar vegna starfsemi heilsuræktarinnar.

Kærendur benda á að samkvæmt samningi um tímabundinn rekstur geti rekstraraðili átt endurkröfurétt á Vestmannaeyjabæ vegna kostnaðar við breytingar á húsnæðinu ef rekstur stöðvarinnar hættir innan árs. Kærendur telja að þetta geti haft í för með sér kostnað fyrir sveitarfélagið ef reksturinn stöðvast.

Þeir telja þetta sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að framkvæmdir hafi þegar verið gerðar á húsnæðinu.

Telja bærinn hafa gefið í skyn að enginn annar kostur væri

Í kærunni er einnig gagnrýnt að Vestmannaeyjabær hafi látið í veðri vaka að enginn annar kostur hefði verið í stöðunni en að gera samning við núverandi rekstraraðila. Kærendur telja að aðrar lausnir hafi verið í boði, meðal annars tímabundinn rekstur á meðan niðurstaða fengist í kærumálinu.

Fyrri umfjöllun um málið má lesa hér að neðan.

Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar

Kæra hefur verið lögð fram til kærunefndar útboðsmála vegna útboðs Vestmannaeyjabæjar um rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Í kærunni er því haldið fram að lykilskilyrði útboðsins séu svo íþyngjandi að þau takmarki verulega samkeppni. Sérstaklega er deilt um kröfu um að bjóðendur hafi að lágmarki 1.000 milljónir króna í eigið fé og að minnsta kosti […]

Nýjustu fréttir

Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.