Á toppi Heimakletts hefur verið staðsett gestabók um nokkura ára skeið þar sem göngugarpar rita nafn sitt í. Sindri �?lafsson setti í gærkvöldi inn stöðuuppfærslu á facebook síðu sína þar sem hann segir frá ferðalagi bókar sem týndist í vetur.
Fyrir þá sem ekki vita þá hefur verið staðsett gestabók uppi á Heimakletti um nokkura ára skeið. Svavar Steingrímsson sem hefur vanið komur sínar á Heimaklett í mörg ár hefur verið einskonar verndari þessara bóka sem eru nú orðnar nokkrar frá því þessi skemmtilegi siður var tekinn upp. Hann hefur séð um að útvega nýjar bækur, séð til þess að þær hafi verið merktar og komið þeim sem hafa fyllst á skjalasafnið. Bækurnar hafa lent í ýmsu í gegnum árin, orðið fyrir slæmri meðferð og eina sótti Svavar meira að segja niður í Dufþekju, allar hafa þær þó komist fyrir rest á skjalasafnið í Vestmannaeyjum. Svo gerðist það 22. febrúar síðastliðinn að velunnarar klettsins komu að hólfinu opnu og enga bók að finna. Upphófst nú margra daga skipulögð leit að bókinni góðu um allt fjall og víðar. Eftir nokkra daga í slæmri vetrartíð gáfust leitarmenn upp og var víst að bókin væri glötuð. Svavar fór þá í það með trega að útvega nýja bók og var henni komið vel fyrir í mars byrjun. �?að gerðist svo í síðustu viku að Gústi á N1 hefur samband og biður Svavar um að koma til sín, hann eigi sendingu hjá sér. Svavar kannaðist ekki við að hafa pantað eitt eða neitt hjá Gústa. Svavar dreif sig niður eftir, þar tekur á móti honum Addi í London með bókina í fanginu. �?eir feðgar höfðu fundið hana á göngu undir Löngu, nokkuð veðraða en í ótrúlega góðu ástandi miðað við tæplega þrjá og hálfan vetrarmánuð í Vestmanneyskri fjöru.