Gildin sem móta okkur
Óskar Jósúason

Aðsend grein

Óskar Jósúason

Laugardaginn 7. mars fengu allir þeir sem eru í framboði fyrir komandi prófkjör Sjálfstæðisflokksins 3–5 mínútur til að kynna sig fyrir fullum sal í Ásgarði. Það var frábær fundur og mér fannst samframboðsmenn mínir allir standa sig mjög vel. Það var greinilegt að þar er saman komið öflugt fólk sem vill leggja sitt af mörkum til samfélagsins okkar.

Á svona stuttum tíma þarf maður að velja orð sín vel. Ég ákvað að nýta tímann ekki í að telja upp loforð heldur frekar að segja frá því hver ég er og hvað hefur mótað mínar skoðanir.

Uppeldi sem mótar sýn

Ég kem ekki úr sterkri sjálfstæðisfjölskyldu né vinahópi þar sem stjórnmál voru mikið rædd. Mín sannfæring mótaðist frekar af uppeldinu og þá sérstaklega af móður minni.

Móðir mín ólst upp í Reykjavík við mjög erfiðar aðstæður. Hún fór að vinna löngu fyrir fermingaraldurinn til að leggja sitt af mörkum á heimilinu og sótti afganga til að tryggja að það væri eitthvað að borða. Þetta var harður veruleiki.

Við slíkar aðstæður væri auðvelt að gefast upp og treysta alfarið á kerfið. En hún gerði það ekki. Hún treysti á sjálfa sig, var dugleg og úrræðagóð og ákvað að móta sína eigin framtíð. Það tókst henni vel.

Síðar kynntist hún föður mínum og þau stofnuðu fjölskyldu. Það var hennar draumur. Þrátt fyrir að hafa byggt upp sitt eigið líf gleymdi hún þó aldrei fjölskyldu sinni í Reykjavík.

Eitt sinn kom upp erfið staða með afa minn. Kerfið var þungt og málið strandaði. Þá skrifaði hún handskrifað bréf til borgarstjórans í Reykjavík. Málið leystist á skömmum tíma. Borgarstjórinn á þeim tíma var Davíð Oddsson.

Þarna sá ég í fyrsta sinn hvað það skiptir máli að kjörnir fulltrúar hlusti. Að þeir sýni almenna skynsemi og geti gripið inn í þegar kerfið fer í hnút.

Þessi reynsla hefur fylgt mér og haft meiri áhrif á mig en ég gerði mér grein.

Fjölskylda og samfélag

Þess vegna ákvað ég að bjóða fram krafta mína í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ekki vegna þess hvað ég ætla að gera einn á næstu árum heldur vegna þess hvað við getum gert saman.

Til að halda málum bæjarins í góðum farvegi þarf fólk með ólíka reynslu og ólíkt sjónarhorn. Við þurfum lið og við þurfum fólk sem getur unnið saman.

Ég hef reynslu bæði úr skólakerfinu og núna úr atvinnulífinu og tel mig hafa margt fram að færa. En það sem ég tel ekki síður mikilvægt er að ég er fulltrúi margra Sjálfstæðismanna sem hafa kannski ekki sterk tengsl inn í flokkinn.

Ég er alinn upp við ábyrgð, dugnað og þá trú að maður móti sína eigin framtíð. Ég er faðir þriggja barna og daglegt líf mitt snýst að stórum hluta um það sama og líf margra annarra fjölskyldna í Eyjum – skóla, íþróttir, vinnu og samfélagið okkar. Í gegnum íþrótta- og barnastarf hef ég séð hversu mikilvægt það er að skapa umhverfi þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að vaxa, læra og finna sinn stað.

Fyrir mér er það fjölskyldan sem bindur þessi gildi saman. Þar lærum við ábyrgð, samvinnu og að standa með hvert öðru.

Það er sú sýn sem ég vil standa fyrir.

 

Virðingarfyllst

Óskar Jósúason,

 

Nýjustu fréttir

Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.