Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Boðið verður upp á innandyra tjaldgistingu í ár. Mynd: Óskar Pétur.

Gestir á Þjóðhátíð munu í ár hafa möguleika á að tjalda inni í Herjólfshöll, en greint var frá þessu inn á Vísi í dag.

Áður hefur þurft að hleypa tjaldgestum inn í Herjólfshöll í neyð þegar veður hefur verið slæmt, en í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á að bóka tjaldstæði þar óháð veðri. Að sögn Ellerts Scheving Pálssonar, framkvæmdastjóra ÍBV er markmiðið með innandyra tjaldsvæðinu að bjóða gestum meiri þægindi, hvort sem veðrið verður gott eða óhagstætt.

Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem tjaldgestir fá að leita skjóls í Herjólfshöll. Í fyrra fengu gestir að færa tjöld sín inn í höllina þegar veður versnaði.

Fleiri breytingar verða á tjaldsvæðum, en tjaldstæði ÍBV færist af Þórsvelli yfir á Týsvöll og starfsemi Rent-a-Tent færist á Þórsvöll.

Forsala á Þjóðhátíð hófst um helgina.

Nýjustu fréttir

Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.