�?au heita Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Jökull Brynjarsson og Tómas Jónsson. �?au eru að ferðast um landið og heimsækja hvert einasta hjúkrunar- og dvalarheimili landsins og syngja og leika fyrir heimilisfólk. Um er að ræða hljómleikaröð til heiðurs eldri borgurum Íslands, sem inniheldur 65 tónleika á einungis 30 dögum. Í gær voru þau á Hraunbúðum og Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og fengu Eyjarjarlinn Jarl Sigurgeirsson með sér á gítarinn. �?egar þau heimsóttu Heilbrigðisstofnunina var Halldór Benedikt mættur með vídeóvélina sína og tók hluta af tónleikunum uppá myndband.