Styrktarfélagið Göngum saman hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á krabbameini í brjóstum kvenna og rannsaka eðli og uppruna sjúkdómsins. Gengið verður á 14 stöðum um land allt að þessu sinni en Eyjamenn hafa ekki verið með nema einu sinni áður. Undirritaður ætlar að ýta þessu úr vör að nýju.