Grænt ljós frá Orkustofnun á framkvæmdir Landsnets til að auka orkuöryggi í Vestmannaeyjum
Orkustofnun hefur veitt Landsneti leyfi til að reisa nýtt 66 kV raforkuflutningsvirki í Vestmannaeyjum auk leyfis til breytinga í tengivirki Landsnets í Rimakoti og styrkingar á hluta Rimakotslínu 1 til að auka flutningsgetu hennar. Sótt var um leyfir fyrir framkvæmdinni til Orkustofnunar 20. mars 2015.
Leyfið, sem barst á sama tíma og alverleg bilun varð í spenni í tengivirkinu í Rimakoti, felur í sér að hægt er að hefjast handa við úrbætur og koma á betri tengingu við Vestmannaeyjar en nú er. Ráðgert er að framkvæmdunum ljúki næsta sumar en megintilgangur þeirra er að auka afhendingargetu og afhendingaröryggi raforku til Eyja til framtíðar, eins og fram kemur í leyfinu. �?ar segir jafnframt að umhverfisáhrif framkvæmdarinnar séu jákvæð þar sem áætlunin geri ráð fyrir að fiskvinnslufyrirtæki, sem nú brenna olíu, munu í kjölfarið í meiri mæli tengjast raforkukerfinu.
Landsnet lagði nýjan sæstreng, VM3, til Vestmannaeyja árið 2013, sem rekinn er á 33 kV spennu og verður hægt að tvöfalda flutningsgetu hans með því að hækka rekstrarspennuna í 66 kV. Til að hækka flutningsspennuna er þörf á að reisa nýtt tengivirki í Vestmannaeyjum því engir stækkunarmöguleikar eru í núverandi tengivirki. Nýja tengivirkið er hugsað sem framtíðarafhendingarstaður til dreifiveitunnar þar, HS Veitna, og verður það reist í samstafi við dreifiveituna sem mun eiga stærstan hluta tengivirkisins. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru á landi Vestmannaeyjabæjar sem þarf að veita framkvæmdaleyfi á grundvelli staðfests skipulags og álits Skipulagsstofnunar.

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.