Grindvíkingar ætla að reynast örlagavaldur í toppbaráttu Íslandsmótsins. Suðurnesjaliðið hefur nú lagt að velli Breiðablik, FH og í kvöld bættu þeir um betur og lögðu toppliðið að velli og það á sjálfum Hásteinsvellinum. Aðstæður voru vægast sagt slæmar í kvöld, sterkur vindur stóð beint á annað markið og lék allt of stórt hlutverk í leiknum. En það kom jafnt niður á báðum liðum. Grindvíkingar nýttu hins vegar eitt af sínum færum en leikmenn ÍBV ekki og því voru það Grindvíkingar sem fóru með sigur, 0:1 og halda glaðir í bragði til Grindavíkur.