Undanúrslit í Olísdeild kvenna hefjast í dag. ÍBV sækir Gróttu heim úti á Seltjarnarnesi klukkan 17:00. Síðast þegar liðin mættust úti á nesi hafði ÍBV betur 18-20. Grótta sigraði ÍBV í hin tvö skiptin sem liðin mættust en alls hafa þau mæst þrisvar á leiktíðini. Grótta eru ríkjandi deildarmeistarar en þær sigruðu Olísdeildinna í ár á meðan ÍBV hafnði í 4. sæti.
Búast má við hörku rimmu milli þessara tveggja liða en til að tryggja sér farseðilinn í úrslitaleikinn þurfa liðin að sigra þrjá leiki.
Liðin mætast svo í Vestmannaeyjum á laugardaginn kl 16:00 og aftur úti á Seltjarnarnesi mánudaginn 27. apríl klukkan 19:30.