Guðmund­ur Fer­tram heimsækir Eyjamenn
GFS Arlington 1 1
Guð­mundur Fer­tram Sigur­jóns­son, stofnandi og for­stjóri Kerecis verður með erindi á fundinum í dag. Mynd/aðsend

​Guðmund­ur Fer­tram Sig­ur­jóns­son, for­stjóri Kerec­is og stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins er einn frummælenda á opnum fundi sem Eyjafréttir standa fyrir í Akóges í dag.

Fundurinn er um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem er nú í meðförum Alþingis. Guðmundur hefur gagnrýnt frumvarpið harðlega og sagði m.a. í umsögn sem hann sendi atvinnuveganefnd þingsins að frumvarpið muni með „einu pennastriki“ soga meira en hálfan milljarð króna árlega úr vestfirsku efnahagslífi til höfuðborgarsvæðisins.

Slíkt grafi undan nýfengnum stöðugleika og vexti í byggðarlögum sem hafi verið áratugum saman að rétta úr kútnum eftir högg kvótakerfisins og samdrátt í sjávarútvegi.

,,​Eftir áratuga samdráttarskeið birtir fyrir sjónum Vestfirðinga. Dugnaður og útsjónarsemi atvinnulífs hefur knúið áfram bata. Vöxtur og viðgangur Vestfjarða hefur byggst upp á öflugum sjávarútvegi, kraftmiklu fiskeldi, fjölbreyttri ferðaþjónustu og nýsköpunarframleiðslu Kerecis. Þessi fyrirtæki og atvinnugreinar hafa skilað framleiðsluverðmæti sem telur tugi milljarða króna og veldisvexti tekna og starfsmannafjölda. Efnahagssporið hefur stigið í byggðarlögunum fyrir vestan með stórauknu skattspori með framlagi langt umfram hlutfallslegan íbúafjölda.

Þessi viðgangur atvinnulífs sést líka í mannlífinu. Fólksfjölgun er loks hafin eftir áratuga fólksfækkun; árgangar í skólum stækka, og fleiri nemendur í tónlistarnámi og íþróttastarfi. Það hefur birt yfir mannlífinu.

En skjótt skipast veður í lofti. Tvöföldun veiðigjalds, boðun verulegrar hækkunar fiskeldisgjalds, sérstakur skattur á skemmtiferðaskip, niðurskurður í vetrarþjónustu samgöngukerfis mun hafa gríðarleg áhrif til hins verra á hagkerfi Vestfjarða og snúa við efnahagsbatanum og stækkun skattsporsins​.”

​Í niðurlagi umsagnarinnar segir svo:

​,,Með áformum ríkisstjórnar um skjóta og mikla hækkun veiðigjalda sjávarútvegs er efnahagslegum vexti Vestfjarða stefnt í voða. Hálfur milljarður í aukin veiðigjöld setur þann vöxt í uppnám. Mál er að linni í opinberri gjaldtöku. Vestfirsku athafnalífi má ekki stefna í voða.”

Fundurinn hefst klukkan 17.00 í Akóges í dag. Er hann öllum opinn.  Á fundinum halda erindi auk Guðmundar þeir Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélags hf. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Róbert Ragnarsson, sérfræðingur hjá KPMG og Stefán Örn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipalyftunnar.

Nýjustu fréttir

Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.