Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun í dag kl. 12:30 – 18:00 á Suðurlandi. Búist er við þrumuveðri á landinu með tíðum eldingum. Forðast ber vatn, hæðir í landslagi og berangur. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Nánari upplýsingar um viðbrögð við eldingaveðri er á upplýsingasíðu almannavarna.

Suðurland

Suðaustan 13-20 m/s og rigning eða slydda með köflum, en él með kvöldinu. Bætir í vind um tíma seint í nótt og í fyrramálið, einkum með ströndinni. 10-18 seint annað kvöld, hvassast norðantil. Hiti 0 til 6 stig.
Spá gerð: 06.03.2026 10:13. Gildir til: 08.03.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag:
Suðaustlæg átt 5-15 m/s, hvassast syðst, en einnig norðantil um tíma. Víða snjókoma eða él, en úrkomuminna norðaustanlands framan af. Frost 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við sjóinn.

Á mánudag:
Gengur í allhvassa eða hvassa suðaustanátt með slyddu eða snjókomu og síðar rigningu, en að mestu þurrt norðaustanlands fram eftir degi. Hlýnandi veður.

Á þriðjudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt. Sums staðar dálitlar skúrir eða él, en víða bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hiti víða 0 til 5 stig yfir daginn.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir suðlæga eða breytileg átt og snjókomu eða él, en slyddu eða rigningu suðaustantil. Þurrt að mestu suðvestantil. Hiti 0 til 5 stig.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir ákveðna norðvestlæga átt með ofankomu norðantil og á Vestfjörðum, annars hægari og úrkomulítið. Kólnar.
Spá gerð: 06.03.2026 08:14. Gildir til: 13.03.2026 12:00.

Nýjustu fréttir

Ófært til lands
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.