Gul viðvörun: Norðvestan hvassviðri eða stormur og él
Vidv 141124
Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og á Suðausturlandi. Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvaranir fyrir alla landshluta.  Appelsínugul viðvörun er vegna veðurs á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og Suðausturlandi. Gul viðvörun vegna veðurs á Höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum, Norðurlandi eystra, Austfjörðum, á Miðhálendi og á Ströndu og norðurlandi vestra.

Viðvörun á Suðurlandi tekur gildi klukkan 6.00 og verður í gildi til klukkan 13.00 á morgun. Í viðvörunarorðum segir: Norðvestan og vestan 15-23 m/s og éljahryðjur með snörpum vindhviðum og lélegu skyggni. Líkur á að færð spillist á fjallvegum. Varasamt ferðaveður.

Nauðsynlegt að festa rækilega niður lausamuni

Lögreglan í Vestmannaeyjum vekur athygli á að veðurspáin er slæm næsta sólarhringinn og full ástæða til þess að festa rækilega niður lausamuni. Gert er ráð fyrir NV stormi undir morgun sem mun ganga niður þegar líður á morgundaginn. Má búast við snörpum hviðum sem gætu hæglega náð 40 m/sek.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Norðan 8-15 m/s, en 15-23 austantil fram eftir degi. Snjókoma með köflum, en úrkomulítið sunnanlands. Hiti um eða undir frostmarki. Dregur úr ofankomu síðdegis.

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Norðan 8-15 og él, en þurrt að kalla sunnan heiða. Frost 2 til 10 stig.

Á miðvikudag:
Norðlæg átt og snjókoma með köflum um landið norðaustanvert, annars úrkomulítið. Áfram kalt í veðri.
Spá gerð: 14.11.2024 08:22. Gildir til: 21.11.2024 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Allhvöss eða hvöss suðvestanátt í dag og hlýtt í veðri. Súld eða rigning, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Á Norðurlandi eru snarpir vindstrengir og því gul viðvörun í gildi. Í kvöld og nótt ganga kuldaskil austur yfir landið og það snöggkólnar.

Á morgun er spáð norðvestan illviðri. Fyrri part dags má búast við hvössum éljagangi á vesturhluta landsins, en uppúr hádegi gengur í hvassviðri eða storm norðan- og austanlands með hríðarveðri. Seint um kvöldið bætir svo enn frekar í vind á Suðausturlandi og Austfjörðum.
Viðvaranir hafa verið gefnar út vegna þessa veðurs og er fólk hvatt til að fylgjast með veðurspám.

Á laugardag er svo útlit fyrir minnkandi norðanátt með éljagangi norðan- og austanlands. Frost um mest allt land.
Spá gerð: 14.11.2024 06:27. Gildir til: 15.11.2024 00:00.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.