„Gullið tækifæri“
22. júní, 2024

„Þarna erum við að sjá drauminn rætast eftir fjögurra ára þrotlausa vinnu. Auðvitað fylgdi því stress áður en við lögðum af stað, en árangur túrsins var langt umfram væntingar,“ segir Hörður Baldvinsson, framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja um rauðátuleiðangur á rannsóknarskipinu Bjarna Sæmundssyni HF 30 í maí sl. „Hann stóð í 3 daga og við höfum sýnt fram á að rauðátan er veiðanleg  með nánast engum meðafla. Það er því hægt að mínu mati  að veiða og nýta rauðátu sem er að finna í miklum mæli við  Suðurströndina á sumrin og ekki síst við Vestmannaeyjar sem gætu orðið miðstöð veiða og vinnslu á rauðátu.“ 

Hugmyndina á sínum tíma fékk Hörður þegar honum var sagt að lundinn missi litina á skrautlegum goggi fái hann ekki karontíne efnin sem eru meðal annars í rauðátu. „Þeir voru fölir á kinn, lundarnir sem fóstraðir voru hjá Sealife Trust. Lundar sem komu fullorðnir inn á safnið misstu smá saman lit á fótum og goggi, því enga fengu þeir rauðátuna. Fór ég að kanna þetta nánar og hingað erum við komin. Niðurstaða okkar úr leiðangrinum er sú að tiltölulega auðvelt sé að veiða um 20 til 30 tonn á sólarhring. 

 Þær tölur miðast við tvö troll og skip með réttum veiðibúnaði og heppilega vinnslu um borð. Árni Friðriksson er kominn til ára sinna og aðeins hægt að toga með einu trolli. Við tókum fimm hol í þessum leiðangri á mismunandi stöðum við Suðurströndina. Fyrst í klukkutíma og fengum 350 kíló. Færðum okkur um set og toguðum í þrjá tíma og í síðasta holinu toguðum við í fjóra tíma. Sprengdum trollið en heildaraflinn var 1,5 tonn af hreinni rauðátu.“ 

Allt í kringum Eyjar 

Rauðáta er allt í kringum Eyjar og köstuðu þeir í um klukkutíma siglingu frá Eyjum. „Síðustu tvö ár  höfum við tekið sýni við Suðurströndina og völdum togslóð m.a. byggða á þeim niðurstöðum. Notuðum þrennskonar gögn, upplýsingar frá gervihnetti um hvar helst er að finna rauðátu, hátíðni bergmálsmæli sem dreginn er með trollinu, þann eina sinnar tegundar á Íslandi. Loks sérhannaða háfa sem strákarnir í Hampiðjunni útbjuggu fyrir okkur í fyrra. Þeir taka sýni á mismunandi dýpi,“ sagði Hörður. 

Með því að keyra þessi gögn saman fékkst heildarmynd af því hvar rauðátan er þéttust. „Þar trolluðum og var léttirinn mikill þegar fengum 350 kíló í fyrsta toginu og enginn meðafli. Mikið undir því það er ekki lítið dæmi að leigja heilt rannsóknaskip með tólf um borð, áhöfn og vísindamenn.“ 

Miklir möguleikar 

Hörður segir það vissulega mikinn létti að sjá drauminn verða að veruleika. „Aflinn var frystur hjá Ísfélaginu sem ásamt Vinnslustöð og fleirum hafa komið að þessu með okkur. Norðmenn hafa reynst okkur vel og notuðum við veiðarfæri frá þeim sem við leigjum í sumar. Rannís og Lóusjóður ásamt Uppbyggingarsjóði Suðurlands veittu okkur styrki sem hefur hjálpað okkur mikið. Þetta er gríðarlegt tækifæri fyrir Vestmannaeyjar.  

Aflinn í leiðangrinum verður nýttur í áframhaldandi rannsóknir en afurðir úr rauðátu geta verið afar verðmætar. Nýtist í fæðubótaefni og lyf sem er lokatakmarkið. Rannsóknir taka tíma en við erum að tala um háar upphæðir. Hafa verður í huga að það tekur langan tíma að þróa heppilegar veiðiaðferðir, þróa vinnslu sem er stöðug og afurðir sem standast ítrustu kröfur sem markaðurinn setur. Hér er um langhlaup að ræða og ekki ólíklegt að þróun vinnslu og afurða taki 10 til 15 ár. Magnið þarf ekki að vera mikið til að skapa hér gríðarleg verðmæti og hátæknistörf hér í Vestmannaeyjum til framtíðar,“ segir Hörður. 

Hann segir mikla vinnu að baki en ÞSV er ekki hætt. „Það er ekki gefið að fá rannsóknaleyfi sem er 1000 tonn á ári í fimm ár eins og við erum með. Við förum aftur út á Árna 18. júní og verðum í fjóra daga. Eins öfugsnúið og það er ætlum við reyna fyrir okkur á svæðum þar sem eru meiri líkur á  meðafla til að ákveða hvar má toga í framtíðinni og á hvaða tímum og hvar ekki. 

Kvótinn í Noregi er 274.000 tonn á ári en þeir veiða ekki nema á milli 1000 tonn á ári upp í 1500. Það kæmi mér ekki á óvart að hér á landi yrði kvótasetningin veruleg þó veiðin yrði lítil til að byrja með. Af nógu er að taka því áætlað er að 13 milljón tonn af rauðátu séu við landið á hverju sumri og í miklum mæli við Vestmannaeyjar.  Hér er allt til staðar, þekking, skip og aðstaða í landi. Gullið tækifæri til að skjóta enn einni stoðinni undir kröftugt og fjölbreytt atvinnulíf í Vestmannaeyjum,“ sagði Hörður að endingu. 

https://eyjar.net/veglegur-styrkur-i-raudatu-verkefnid/

https://eyjar.net/vorum-ad-fa-allt-ad-500-kg-a-togtima/

Facebook
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
14. tbl. 2024
14. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst