�??Mér finnst afar ólíklegt að ég verði annað ár með Konyaspor, þó maður eigi að sjálfsögðu aldrei að segja aldrei. Hlutirnir eru fljótir að breytast í fótboltanum en ég stefni að því að spila annars staðar í Evrópu á næsta tímabili, og helst mun nær Íslandi,�?? sagði Gunnar Heiðar �?orvaldsson, knattspyrnumaður í samtali við Morgunblaðið. Gunnar hefur verið hjá tyrkneska félaginu Konyaspor en fengið takmörkum tækifæri í vetur, lék aðeins 12 leiki af 34 og var ekki í leikmannahópi tyrkneska liðsins síðustu vikurnar.
�??�?g hélt að ég hefði upplifað flest á þeim tíu árum sem ég hef spilað sem atvinnumaður en hef hisnvegar kynnst meira nýju á þessu eina ári í Tyrklandi en hinum samanlagt. En ég vissi alveg þegar ég samdi við Konyaspor að þetta gæti orðið skrautlegt, enda fór ég þangað á þeim forsendum að svona tækifæri byðist aðeins einu sinni í lífinu og maður yrði að fá sem mest útúr því,�?? sagði Gunnar, sem fór þó ágætlega af stað.