Í nýjasta þættinum af Hafnir Íslands sem er á dagskrá Hringbrautar er fjallað um Vestmannaeyjahöfn. �?átturinn er í umsjón Lindu Blöndal og Friðþjófs Helgasonar og hægt er að horfa á hann á hringbraut.is
�?ar kemur meðal annars fram að �??eitt af stóru verkefnunum í Vestmannaeyjum er að stækka höfnina�??, segir hafnarstjórinn. Við heyrum brot af dramatískri sögu hafnarinnar hjá fyrrum hafnarstjóra Eyjamanna en einnig sjáum við hvernig nútíminn bankar upp á með gífurlegri fjölgun skemmtiferðaskipa, nærri 70 í sumar er leið.
Vestmannaeyjahöfn er stærsta fiskiskipshöfn landins en þangað koma olíuskip og í meira mæli skemmtiferðaskip – í fyrra voru þau 13 en í sumar er áætlað að næstum 70 skemmtiferðaskip komi til Eyja. �?lafur hafnarstjóri ræðir um stöðu hafnarinnar í þættinum.
Einnig er talað við Elliða Vignisson bæjarstjóra Vestmannaeyjarbæjar um mikilvægi hafnarinnar fyrir samfélagið í Eyjum, sem hann segir �??súrefni samfélagsins�??.
Síðast en ekki síst hittum við Arnar Sigmundsson, fyrrverandi formann framkvæmda- og hafnarráðs í Vestmannaeyjum. Arnar þekkir sögu hafnarinnar eins og lófann á sér og fer um Eyjar með hópa og segir meðal annars frá því hvernig gosið í Heimaey stórbætti höfnina þrátt fyrir ótta um hið gagnstæða.