Haftyrðill fannst við Hraunbúðir
SAMSUNG CAMERA PICTURES
SAMSUNG CAMERA PICTURES
Á jóladag fannst haftyrðill við Hraunbúðir, sem náði ekki að hefja sig til flugs. Finnendur hans komu með hann daginn eftir í Sæheima þar sem fuglinn var vigtaður. Hann var frekar léttur en virtist að öðru leyti vera hinn hressasti. Var honum því gefið smávegis æti og honum síðan sleppt á haf út.
Haftyrðlar eru minnstu svartfuglarnir og eru aðeins um 150 g að þyngd. Til viðmiðunar eru lundar um 500 g og langvíur um 1 kg. Haftyrðlar eru hánorrænir fuglar og verptu áður á nokkrum stöðum við norðanvert landið. Til skamms tíma verptu nokkur pör í Grímsey. Vegna hlýnandi veðurfars eru þeir nú alveg horfnir. �?eir eru nokkuð algengir norðan við okkur eins og á Grænlandi, Jan Mayen og Svalbarða. Yfir vetrartímann halda haftyrðlar sig helst við hafísröndina en sjást þó oft hér við land, sérstaklega eftir norðanáttir. Í vondum veðrum geta þeir hrakist langt inn á land.
Heimild: Íslenskur fuglavísir eftir Jóhann �?la Hilmarsson. MM 2011.

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.