Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og kom m.a. upp fíkniefnamál í lok vikunnar þar sem nokkuð magn af fíkniefnum voru haldlögð. �?á var nokkur erill um helgina og þurfti lögreglan að hafa afskipti af gleðskap í heimahúsi sem fór úr böndunum. Annars var frekar rólegt í kringum öldurhús bæjarins.
Sl. fimmtudagskvöld lagði lögreglan hald á um 70-80 gr. af ætluðu maríhúana við leit í bifreið sem kom með Herjólfi til Vestmannaeyja. �?kumaður bifreiðarinnar, kona um fertugt, viðurkenndi að vera eigandi efnanna og að þau hafi verið ætluð til sölu. Konan hefur ekki áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamisferlis. Málið telst að mestu upplýst.
Ein líkamsárás var kærð eftir skemmtanahald helgarinnar en kona á fertugsaldri lagði fram kæru á hendur manni á um þrítugt vegna meintrar líkamsárásar. Ekki er um alvarlega áverka að ræða og er málið í rannsókn.
Um helgina var lögreglu tilkynnt um að stolið hafi verið lyfjum úr heimahúsi og að grunur beindist að þremur ungum mönnum sem þar höfðu verið gestkomandi. Málið er í rannsókn.
�?rjár kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum og er í öllum tilvikum um að ræða ólöglega lagningu ökutækja.
Undir morgun þann 9. febrúar sl. var lögreglu tilkynnt um slagsmál í heimahúsi og að einn af þeim sem þarna var í átökum væri blóðugur. Lögreglu tókst að stilla til friða og reyndist sá sem blæddi úr vera með lítið sár á enni. Eftir að friður komst á fóru þeir sem þarna áttu hlut að máli til síns heima, án þess að lögregla þyrfti að hafa frekari afskipti af þeim. Ekki liggja fyrir kærur vegna atviksins.
Dagana 10. til 17. febrúar nk. mun lögreglan vera með sérstakt umferðarátak í gangi vegna eftirfarandi:
Vanrækslu á notkun öryggisbelta í akstri
Notkun farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar
Stöðvunar- og biðskyldubrotum
Ljósabúnaði ökutækja