Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og rólegt í kringum skemmtistaði bæjarins um helgina. Þó þurfti lögreglan að hafa afskipti af fólki sem lét ófriðlega en þau mál leystust flest farsællega. Síðdegis sl. föstudag var lögreglu tilkynnt um þjófnað úr Gullbúðinni v/Vestmannabraut en þarna hafið hálsmeni verið stolið þar sem það lá á afgreiðsluborði. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki og óskar lögreglan eftir upplýsingum um hugsanlega gerendur.