Átján ára Eyjamaður hefur alið lundapysju sem hann fann í fyrra. Pysjan, sem er kölluð Angie, fer í vist á fiskasafni bæjarins þegar fjölskyldan fer í sumarfrí. Andri Þór Gylfason fann lundapysjuna á rúntinum í Vestmannaeyjum á pysjutímanum fyrir tæpu ári. Hann hefur gefið henni nafnið Angie.