Herjólfshöllin opnuð fyrir gesti Þjóðhátíðar
Veðrið á að ganga yfir í nótt :: engin áhrif á dagskrá kvöldsins
Þjóðhátíðarnefnd hefur virkjað viðbragðsáætlun sína vegna veðurs og opnað Herjólfshöllina fyrir gestum Þjóðhátíðar. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Þjóðhátíðarnefnd hefur virkjað viðbragðsáætlun sína vegna veðurs og opnað Herjólfshöllina fyrir gestum Þjóðhátíðar. Þar geta gestir leitað skjóls og gist í öruggu skjóli meðan gul viðvörun er í gildi sunnanlands. Gert er ráð fyrir að veðrið gangi niður þegar líður á nóttina. Þetta segir í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd.

Þar segir jafnframt að gestum sé heimilt að koma í höllina með tjöld og annan viðlegubúnað og dvelja þar í nótt. Dagskráin í dalnum heldur ennþá sínu striki og er kvölddagskráin hafin.

„Þetta eru aðstæður sem við höfum séð áður og vorum við tilbúin að opna íþróttahúsið ef til þess kæmi. Hundruð sjálfboðaliða og viðbragðsaðila, sem byggja á áralangri reynslu, standa vaktina og verkefnið snýst fyrst og fremst um að tryggja öryggi gesta,“ segir Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar. Þrátt fyrir veðrið eru flestir gestir vel búnir og láta það ekki koma sér á óvart, og að sögn Jónasar er tilefni til að hrósa þeim fyrir það.

Þrumuveður með eldingum

Rétt er að geta þess að Veðurstofan uppfærði viðvörun sína í kvöld en búist er við þrumuveðri í nótt á Suðurlandi. „Búist er við þrumuveðri með eldingum í skilunum í kvöld. Forðast ber vatn, hæðir í landslagi og berangur. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Nánari upplýsingar um viðbrögð við eldingaveðri er á upplýsingasíðu almannavarna (www.almannavarnir.is/natturuva/eldingar/).”

Nýjustu fréttir

Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í ferbrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.