Vegna óveðursins sem nú geysar um allt land, m.a. í Eyjum, sigldi Herjólfur ekki fyrri ferð sína í morgun. Skipið mun hins vegar sigla síðar í dag, eða klukkan 12:00 og 17:00 frá Þorlákshöfn eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Eimskip. Verið er að vinna að því að opna Þrengslin og þess vegna var ákveðið að breyta siglingatímanum og aðeins þessi eina ferð.