Á fundi bæjarstjórnar í gær var kosið í ráð og nefndir vegna brotthvarfs Páleyjar Borgþórsdóttur af vettvangi bæjarmála. Páley tekur við stöðu lögreglustjóra í Vestmannaeyjum frá og með áramótum.
Í stað Páleyjar í bæjarráði verður Páll Marvin Jónsson formaður og í stað Páls Marvins sem forseta bæjarstjórnar kemur Hildur Sólveig Sigurðardóttir. Kemur hún inn í bæjarstjórn fyrir Páleyju. Í stað Páleyjar kemur Birna �?órsdóttir sem skrifari í bæjarstjórn. Í stað Páleyjar sem fulltrúi í Sambandi sunnl.sveitarfélaga kemur Hildur Sólveig sem líka verður varamaður í fulltrúaráð Samb. ísl.sveitarfélaga í stað Páeyjar.
Tilnenfingarnar voru samþykktar með sjö samhljóða atkvæðum.