Hildur Sólveig - Menntun í Vestmannaeyjum er öflug og góð
Í nútímasamfélagi skiptir aðgengi að menntun sköpum. Samfélagið breytist hratt og líklegt er að ráðandi hluti barna á leikskóla komi til með að vinna störf sem við eigum ekki nöfn yfir í dag. Ábyrgð kjörinna fulltrúa hvað stefnu og stjórn í þessum málaflokki er rík og mikilvægt að hvergi sé slegið af þegar sótt er fram. Í Vestmannaeyjum er rekið stórt og mikið fræðslukerfi sem spannar menntun frá leikskólastigi að háskólastigi og langar mig sem formanni fræðsluráðs Vestmannaeyjabæjar að stikla á stóru til að gera grein fyrir hversu víðtækt fræðslukerfi okkar Eyjamanna er.
�?flug leikskólaþjónusta hornsteinn menntunar og jafnréttis
Fjölbreytt leikskólaþjónusta er í boði en nýverið endurnýjaði Vestmannaeyjabær rekstrarsamning við Hjallastefnuna vegna leikskólans Sóla sem almenn ánægja hefur verið með. Sóli ásamt leikskólanum Kirkjugerði eru öflugar menntastofnanir þar sem yngstu nemendurnir hefja sína skólagöngu og með kærleiksríkri handleiðslu leikskólakennara tileinka þeir sér jafnt og þétt nýja þekkingu, læra umburðarlyndi og samvinnu ásamt því að efla sjálfstæði og þróa sköpunarhæfni sína. Kynjajafnrétti hefur mælst best á Íslandi til margra ára og má að mínu mati m.a. þakka öflugum leikskólum og hóflegum leikskólagjöldum íslenskra sveitarfélaga slíkan árangur, þar sem foreldrar treysta börnum sínum í höndum hæfra starfsmanna leikskóla í æ ríkara mæli. Rekstur leikskóla er síkvikur og nýjar þarfir myndast á hverju misseri. Fræðsluráð er með þá stefnu að tryggja öllum 18 mánaða börnum leikskólapláss og til að standa undir því markmiði styttist nú í að þörf fyrir auknu plássi myndist og til að mæta þeirri þörf hefur bæjarráð samþykkt fjárframlag til stækkunar leikskólans Kirkjugerði.
Grunnskóli Vestmannaeyja í sífelldri sókn
Starfsemi Grunnskóla Vestmannaeyja hefur breyst umtalsvert á undanförnum árum. Stofnuninni var aldursskipt og varð í stað tveggja sjálfstæðra skóla, ein stór heild sem telur einn fjölmennasta grunnskóla landsins. Nýlega varð 5 ára leikskóladeild Víkurinnar einnig hluti af starfsemi GRV og stækkaði hann enn frekar við þá breytingu. Mikill metnaður hefur legið hjá starfsmönnum skólans og skólayfirvöldum í að ná góðum árangri í menntun grunnskólanemenda á sama tíma og mikil áhersla er lögð á heilsu og vellíðan nemenda. Ein stærsta áskorun grunnskólans líkt og annarra menntastofnana um þessar mundir mun vera að fylgja hraðri tækniþróun samtímans. Til þess að ná árangri er nauðsynlegt að allur aðbúnaður og starfsumhverfi nemenda og starfsfólks skólans sé eins og best verður á kosið hverju sinni. Samræmdar mælingar eru nú orðnar rafrænar og með dyggri aðstoð samfélagsins í Vestmannaeyjum er tækjakostur GRV sífellt að batna. Í síðustu viku samþykkti fræðsluráð 60 milljón króna tillögur sem miðuðu m.a. að því að styrkja stoðkerfi skólans og úrbætur hvað húsnæði og aðstöðu varðar og að draga úr álagi á kennara. Einnig eru nú hafnar tímabærar endurbætur utanhúss á húsnæði Barnaskólans og verkáætlun varðandi framkvæmdir á grunnskólalóðum eru í þróun.
Framhaldsskólinn býður upp á fjölbreytt tækifæri til menntunar
Á síðasta ári tók gildi ný reglugerð um styttingu framhaldsskólans og hefur það verið krefjandi verkefni fyrir kennara og nemendur að aðlagast breyttu framhaldsskólaumhverfi. Fjölbreytt námsúrval er í boði við skólann þar sem val er um þrjár línur til stúdentsprófs, starfsbraut ætluð fötuðum nemendum, starfsréttindanám fyrir sjúkraliða og vélstjóra, grunnnám til iðnmenntunar í raf- og málmiðn og framhaldsskólabrú. �?ess að auki er ein best útbúna FabLab smiðja landsins staðsett í húsnæði skólans og njóta nemendur góðs af. Af persónulegri reynslu er FÍV góður undirbúningur fyrir frekara nám enda hafa fjölmargir nemendur skólans haldið áfram í krefjandi háskólanám bæði hérlendis og erlendis.
Háskólanám stöðugt að aukast
Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð hefur verið starfandi frá árinu 2003 og boðið upp á ýmis námskeið, endurmenntun, símenntun og fjarnám í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands. Á síðasta ári hóf svo Háskólinn í Reykjavík staðbundið nám við Haftengda nýsköpun, en fyrsti nemendahópurinn úr Vestmannaeyjum stóð sig afburðarvel og fékk m.a. tvenn verðlaun fyrir lokaverkefni sitt. Ánægjan með námið var mikil og ákvað Háskólinn í Reykjavík að bæta við möguleikanum á að hefja staðarnám í viðskiptafræði með áherslu á sjávarútveg næsta haust.
Stuðningur foreldra lykilatriði
Líkt og sjá má er staða okkar Eyjamanna í menntamálum verulega góð. Fjölbreytnin í námsúrvali er mikil og hefur farið vaxandi, aðstæður og umhverfi skólanna eru í sífelldri þróun og kennarar og starfslið skólanna er dugmikið og metnaðarfullt í að veita nemendum sínum úrvalskennslu. Áfram þarf þó að sækja og þá ekki síst í hverskonar iðn- og verknámi enda er það sá jarðvegur sem atvinnulíf okkar þarf hvað mest á að halda. Að lokum er vert að taka fram að á öllum þessum menntastigum skiptir áhugi og stuðningur foreldra og aðstandenda við námið verulegu máli fyrir framvindu þess. Að sama skapi hefur samfélagsleg umræða mikil áhrif á þá ímynd sem sköpuð er af náminu. Vestmannaeyingar geta og eiga að vera stoltir af þeim menntastofnunum sem við eigum yfir af búa, þar er unnin ómetanleg vinna við að móta framtíðina. ,,�?að þarf heilt þorp til að ala upp barn.�?�
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Formaður fræðsluráðs Vestmannaeyjabæjar

Nýjustu fréttir

Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.