Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir gefur út Silfurskrínið:
Hljóðbók á þremur diskum fyrir 4 til 104 ára
Í gærkvöldi kynnti Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir frá Vatnsdal bók sína, Silfurskrínið á Café Varmó og var vel mætt. Kolbrún Harpa fer ekki hefðbundna leið í útgáfunni og kemur sagan út á þremur hljóðdiskum og er það hún sjálf sem les upp.
Kolbrún Harpa segist mjög ánægð með móttökurnar og er von á fleiri bókum. �??�?etta er fyrsta bók, kannski verður þetta þríleikur og er Silfurskrínið spennusaga sem gerist á Heimaey. Byggð á raunverulegum atburðum en auðvitað tekur maður sér skáldaleyfi,�?? sagði Kolbrún Harpa í viðtali við Eyjafréttir.is.
Upphafalega var hugmyndin að gefa sögu út í bók en Kolbrún Harpa segir að það hafi ekki gengið upp peningalega. �??�?etta varð niðurstaðan en þetta hefði aldrei gengið upp ef Helena, dóttir mín sem er með heilt stúdíó heima hjá sér hefði ekki hjálpað mér. Hún hefur verið mín stoð og stytta í þessu öllu og fleiri hafa verið hjálplegir,�?? sagði Kolbrún Harpa sem er ánægð með viðtökurnar.
Silfurskrínið, sem er á þremur diskum, er ætluð fólki frá 4 ára upp í 1004 ára og getur fólk nálgast hana með því að hringa í síma 481 3195 og 659 6866 eða hafa samband á Fésbókinni.