Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Líkt og á fyrri sýningum mun Arnar Sigurmundsson greina nánar frá myndefninu og leiða umræður.

Fimmti þáttur sýningarraðarinnar “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma” verður sýndur laugardaginn 14. mars kl. 11.00–12.00 í Sagnheimum.

Eins og fyrri þáttum er mest fjallað um tímabilið 1950-1960, en einnig bregður fyrir eldri og nýrri klippum.

Meðal þess sem kemur fyrir í þessum þætti eru byggingaframkvæmdir, 17. júní hátiðarhöld, Hásteinshlaupið, skrúðganga upp Kirkjuveg, útimessa við Landakirkju, uppsetning á útsýnisskífunni á toppi Helgafells og einstakar myndir af austurbænum um 1955.

Á undan  verður sýndur sex mínútna kafli frá heimsókn tveggja þýskra farþegarskipa til Íslands í júlí 1939 einum og hálfum máuði áður en síðari heimsstyrjöldin hófst.

Vestmannaeyjar voru fyrsti viðkomustaður og mjög áhugaverðar myndir frá Eyjum. Það sem gerir þessa mynd  merklegri er að þetta er í  fyrsta skipti sem litmyndir voru teknar á Íslandi.

Ekki er síður merkilegt að sú sem tók mydirnar var Eva Braun, ástkona og síðar eiginkona Adolfs Hitlers, en samband þeirra var  óþekkt á þessum tíma og ferðist hún undir eigin nafni með skipinu.

Líkt og á fyrri sýningum mun Arnar Sigurmundsson greina nánar frá myndefninu og leiða umræður. Gunnar Júlíusson, grafískur hönnuður, yfirfór myndefnið og sá um úrvinnslu verkefnisins, sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands.

Mjög góð aðsókn hefur verið á sýningarnar. Þrjú stór sjónvörp á staðnum gerir upplifunina enn betri.

Nýjustu fréttir

Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.