Hreimur Örn Heimisson, söngvari hljómsveitarinnar Lands og sona, semur Þjóðhátíðarlagið í ár en áætlað er að frumflytja lagið á morgun, 17. júní. Þetta er í fjórða sinn sem Hreimur semur Þjóðhátíðarlagið en hann samdi m.a. hið geysivinsæla Lífið er yndislegt sem hefur verið einkennislag Þjóðhátíðarinnar síðustu ár. Þjóðhátíðarlagið í ár heitir Brim og boðaföll en Hreimur frumflutti lagið við setningu Pæjumótsins. Hægt er að sjá upptöku frá flutningnum hér að neðan.