Huginn VE og VSV í tímabundnu innflutningsbanni vegna athugasemda frá rússneskum heilbrigðisyfirvöldum
Nokkrir íslenskir framleiðendur sjávarafurða hafa fengið tímabundið bann við innflutningi á fiskafurðum til Rússlands. Í þeirra hópi eru meðal annars stór fyrirtæki og skip í vinnslu á uppsjávarfiski, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum. Fyrirtækin sem hér um ræðir eru Frostfiskur, verksmiðja HB Granda á Vopnafirði, Huginn VE, Ísfiskur, Skinney-�?inganes og Vinnslustöðin. Tveir aðilar eru auk þess í sérstöku athugunarferli, þ.e. Gnúpur GK og Loðnuvinnslan.
Í Fiskifréttum segir að á sínum tíma framseldi Tollabandalag Rússlands og fleiri ríkja heimild til Matvælalstofnunar Íslands til að skoða og taka út vörur hjá íslenskum fyrirtækjum sem mega flytja afurðir sínar til Rússlands. �?annig hefur þetta verið í nokkur ár. Fulltrúar Tollabandalagsins komu síðan til landsins í haust og gerðu þá sérstaka úttekt á nokkrum íslenskum fyrirtækjum og kemur innflutningsbannið í kjölfar þess.
Fiskifréttir hafa heimild fyrir því að grunsemdir séu uppi um að tímabundnar lokanir á innflutningsleyfi verði ekki eingöngu skýrðar með þeim athugasemdum sem fram hafa komið frá rússneskum heilbrigðisyfirvöldum. Heldur búi aðrar hvatir að baki og hugsanlega viðskiptalegar.
Hér eru gríðarlegir hagsmunir í húfi því samkvæmt viðtölum Fiskifrétta við menn í greininni má ætla að 15 til 20% af tekjum uppsjávarfyrirtækja verði til með sölu á afurðum til Rússlands.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.